Samkeppnishæfni - 

01. febrúar 2018

Bein útsending frá Smáþingi hefst kl. 15

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Bein útsending frá Smáþingi hefst kl. 15

Markaðsmál lítilla og meðalstórra fyrirtækja verða í kastljósinu á Smáþingi Litla Íslands sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica fimmtudaginn 1. febrúar kl. 15-16.30. Tölur um umfang og mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja verða einnig birtar á þinginu auk þess sem bent verður á leiðir til að bæta starfsumhverfið.

Frumkvöðlar segja reynslusögur og fram fara umræður. Netagerð fer fram að loknum fundi með tónlist og tilheyrandi. 

  • Hvernig á að ná í nýja viðskiptavini og halda núverandi viðskiptavinum?
  • Hvað er að gerast á markaðnum?
  • Hvernig nærðu árangri með markaðsstarfi?
  • Hvernig er hægt að nota samfélagsmiðla með nýjum hætti?
  • Hvaða áhrif hafa áhrifavaldar?

Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, setur þingið en dagskrá má nálgast hér að neðan þar sem er einnig hægt að skrá sig.  Smáþingsstjóri er Guðný Helga Herbertsdóttir, framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar hjá VÍS.

Litla Ísland er vettvangur þar sem lítil fyrirtæki vinna að stórum hagsmunamálum. Bakhjarlar Litla Íslands eru SAF, SVÞ, SI, SFF og SA. Kynning á þjónustu samtakanna verður fyrir og eftir Smáþing.

DAGSKRÁ SMÁÞINGS 2018

Setning
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

Stóra lausnin er smá!
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Hvernig ná lítil og meðalstór fyrirtæki árangri með markaðsstarfi?
Guðmundur Arnar Guðmundsson, markaðsstjóri Íslandsbanka og stundakennari við HR

Rótgróið fyrirtæki í nýjum heimi
Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss og formaður SI.

Vald áhrifavalda og nýjar leiðir við notkun samfélagsmiðla
Hlynur Þór Árnason, sölu- og markaðssérfræðingur hjá Ghostlamp

Reynslusögur & umræður

Pink Iceland
Eva María Þórarinsdóttir Lange, stofnandi og eigandi

Einstök Ölgerð
Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri.

Omnom
Óskar Þórðarson, framkvæmdastjóri.

Eldum rétt
Hanný Inga Birschbach, þjónustustjóri

SKRÁNING

Umsóknarferli er lokið.

Samtök atvinnulífsins