1 MIN
Auknar byrðar á fyrirtæki þvert á markmið um einföldun
Samtök atvinnulífsins hafa sent forsætisráðuneytinu tvíþætt minnisblað þar sem er varað við auknum kostnaði og flóknari kröfum til fyrirtækja, annars vegar vegna reglugerðardraga um rýni á erlendum fjárfestingum og hins vegar reglugerðar um skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Að mati SA gengur fyrirhuguð framkvæmd þvert á markmið stjórnvalda um einföldun regluverks og bætta samkeppnishæfni.
Samtökin telja að reglugerðardrögin um erlendar fjárfestingar nái til óþarflega margra fyrirtækja og skapi óvissu sem geti fælt fjárfestingu frá landinu. Þá geti kröfur vegna skýrslugjafar um kynbundinn launamun kallað á kostnaðarsama endurskoðun jafnlaunakerfa sem fyrirtæki hafa þegar byggt upp.
SA óska eftir að gildistöku reglugerðar um rýni á erlendum fjárfestingum verði frestað og drögin endurskoðuð í samráði við atvinnulífið. Jafnframt verði fyrirkomulagi skýrslugjafar um kynbundinn launamun breytt þannig að unnið sé gegn launamun kynjanna án óþarfa kostnaðar og vinnu.
Minnisblaðið er birt í heild hér að neðan:
Minnisblað um athugasemdir SA vegna 1) reglugerðar um afmörkun viðkvæmra sviða skv. 3. gr. laga nr. 84/2026 um rýni á fjárfestingum erlendra aðila og 2) skýrslugjöf um kynbundinn launamun
Samtök atvinnulífsins vekja athygli á tveimur reglugerðum dómsmálaráðherra og atvinnuvegaráðherra sem eru óbreyttar til þess fallnar að íþyngja íslenskum fyrirtækjum:
1. Drög að reglugerð um afmörkun viðkvæmra sviða skv. 3. gr. laga nr. 84/2026 um rýni á fjárfestingum erlendra aðila voru birt í samráðsgátt stjórnvalda 15. október sl. Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök gera ráð fyrir að skila umsögn um málið í lok vikunnar, 13. nóvember. Samtökin vara eindregið við því uppleggi sem fram kemur í reglugerðinni og fara þess á leit við stjórnvöld að drögin verði tekin til endurskoðunar í samráði við atvinnulífið. Helstu punktar samtakanna eru eftirfarandi:
a. Skortur á samráði og aðlögunartíma. Samráðsferli hófst seint og aðeins þegar reglugerðardrögin lágu fyrir. Miðað við áætlaða gildistöku reglugerðarinnar mun atvinnulífinu ekki gefast nægt svigrúm til undirbúnings. Ekkert samráð var haft við atvinnulífið við gerð draganna og alltof skammur tími er til stefnu fram að gildistöku reglugerðarinnar.
b. Víðtækt gildissvið. Samtökin hafa áhyggjur af því að reglugerðin verði notuð til að víkka gildissvið reglnanna eða auka flækjustig. Gildissvið reglugerðarinnar þarf að ráðast af mikilvægi starfseminnar og áhrifum mögulegrar röskunar. Sá fjöldi fyrirtækja sem virðist eiga að falla undir reglugerðina skv. mati samtaka í húsi atvinnulífsins er ekki í neinu samhengi við markmið þeirra laga sem samþykkt voru í vor.
c. Ýmsar efnislegar athugasemdir, m.a:
i. Hvergi er skilgreint hverjir teljast gegna lykilhlutverki í framleiðslu, innflutningi og aðfangakeðjum mikilvægra aðfanga.
ii. Tryggja þarf þær undanþágur sem standa til boða að EES-rétti svo að Ísland sé á sambærilegum stað og aðrar Evrópuþjóðir.
iii. Fjármálakerfið virðist allt eiga að falla undir reglugerðina sem dregur úr skilvirkni eftirlitsins.
iv. Óvissa og ófyrirsjáanleiki fælir frá erlenda fjárfestingu þvert á markmið um aukna samkeppnishæfni og einföldun.
v. Í reglugerðinni er ekki að finna neinar leiðbeiningar eða útskýringar fyrir mat á því hvort og hvernig fyrirtæki eigi að falla undir reglurnar. Án leiðbeininga lenda fyrirtæki í óvissu um tilkynningarskyldu sem varðar ógildingu, dagsektum og innlausn.
vi. Mögulegar undanþágur fyrirtækja verða að liggja fyrir fyrirfram.
2. Samhliða breytingum á jafnlaunakerfinu sem tóku gildi 1. september sl. tók gildi reglugerð um framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun og eftirlit Jafnréttisstofu en reglugerðin fór ekki í hefðbundið samráðsferli. Samtökin vara við því að framkvæmd skýrslugjafarinnar muni auka vinnu fyrirtækja í stað þess að einfalda hana og óska eftir því að fyrirkomulagið verði endurskoðað m.t.t. markmiða þess frumvarps sem samþykkt var sl. vor um einföldun.
a. Að mati SA gengur reglugerðin og leiðbeiningar Jafnréttisstofu lengra en lögin kveða á um. Lögin gera ráð fyrir að störf séu flokkuð eftir hlutlægum viðmiðum, svo sem ábyrgð, hæfni, álagi og vinnuaðstæðum. Samkvæmt leiðbeiningunum þurfi fyrirtæki hins vegar að setja upp stigakerfi og gefa hverju viðmiði sérstakt vægi.
b. Fyrirtæki sem hafa þegar fjárfest í vottuðum jafnlaunakerfum gætu því þurft að endurmeta störf og byggja kerfin upp að nýju. Slíkt getur aukið kostnað og vinnu fyrirtækja verulega.
c. SA hvetja til samráðs stjórnvalda við hagaðila um þá framkvæmd sem nýjar leiðbeiningar og gagnagátt Jafnréttisstofu munu leiða til líkt og rétt hefði verið að gera frá upphafi. Að mati samtakanna er ljóst að óbreytt mun framkvæmdin leiða til óþarfa kostnaðar og vinnu fyrirtækja, þvert á markmið breytinganna. Samtökin óska eftir samtali og samráði við stjórnvöld svo að finna megi lausn sem tryggir að spornað verði gegn launamun kynjanna án íþyngjandi aðgerða.
Samtökin óska eftir því að 1) gildistöku reglugerðar um afmörkun viðkvæmra sviða verði frestað og að reglugerðardrögin verði endurskoðuð í samráði við atvinnulífið og 2) gerðar verði breytingar á reglugerð um skýrslugjöf um kynbundinn launamun til að tryggja að framkvæmdin verði skilvirkari, hagkvæmari og gagnsærri en áður.