Vinnumarkaður - 

31. maí 2018

Atvinna ungs fólks með geðraskanir

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Atvinna ungs fólks með geðraskanir

Fimmtudaginn 7. júní verður verður fjallað um atvinnuþátttöku ungs fólks með geðraskanir á morgunverðarfundi í Húsi atvinnulífsins. Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins boða til fundarins þar sem IPS hugmyndafræðin verður kynnt og fyrirtæki segja reynslusögur af verkefninu.

Nanna Briem hjá geðsviði Landsspítalans og Hlynur Jónasson, atvinnuráðgjafi, kynna IPS (e. Individual Supported Employment) sem er hugmyndafræði sem stuðst er við sem stuðningsmódel í snemmíhlutun ungs fólks með geðrofseinkenni og geðklofa. Hún byggist fyrst og fremst á því að finna góð störf og vandaða vinnustaði með hliðsjón af áhugasviði og hæfileikum einstaklingsins og með miklum stuðningi sem felur í sér eftirfylgni og reglulegar heimsóknir á vinnustaðinn sem og fræðslu og samtölum.

Hver einstaklingur hefur bæði atvinnuráðgjafa og tengilið frá Landspítalanum sér til stuðning fyrsta árið eftir að hann hefur störf og jafnvel lengur, ef þurfa þykir. Þetta er teymisvinna og hún er lykillinn að þeim árangri sem getur náðst.

Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00.

Fundarstjóri er Héðinn Unnsteinsson, stefnumótunarsérfræðingur í forsætisráðuneytinu. 

Skráning fer fram á vef SI

Samtök atvinnulífsins