Fréttir - 

19. júlí 2017

ASÍ og SA ósammála áliti FME

Vinnumarkaðsmál

Vinnumarkaðsmál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

ASÍ og SA ósammála áliti FME

Í sameiginlegu bréfi ASÍ og SA sem sent var Fjármálaeftirlitinu (FME) í dag, lýsa samtökin því yfir að þau séu ósammála þeirri afstöðu FME, sem fram kemur í dreifbréfi til lífeyrissjóða dagsett 7. júlí 2017, að tilgreind séreign sé flytjanleg frá þeim sjóði sem tekur við iðgjaldi til skyldutryggingar.

Í bréfinu kemur fram að samtökin hafi fulla heimild til að gera kjarasamning um tilgreinda séreign sem lúti öðrum reglum en ákvæðum lífeyrissjóðslaganna um séreign hvað varðar vörsluaðila, ávöxtun og útgreiðslu. Ennfremur að samtökin hafi gert kjarasamning um að réttur launamanns til að ráðstafa hækkun iðgjalds í tilgreinda séreign snúi að þeim lífeyrissjóði sem tekur við iðgjaldi til skyldutryggingar.

Samtökin beina því til FME að það endurskoði tilmælin til lífeyrissjóðanna.

Sjá nánar:

Bréf ASÍ og SA til FME 19. júlí 2017: Um tilgreinda séreign og túlkunarágreining (PDF)

Samtök atvinnulífsins