1 MIN
Ákall um jákvæða hvata til grænna fjárfestinga
Á umhverfisdegi atvinnulífsins komu saman yfir 300 fulltrúar frá um 200 fyrirtækjum. Þegar þátttakendur voru beðnir um að forgangsraða helstu áherslum í umhverfis- og loftslagsmálum fyrir komandi kosningar, voru hvatar til grænna fjárfestinga efstir á baugi. Skilaboðin voru skýr - jákvæðir hvatar, ekki þvinganir, eru leiðin að árangri, því það er jú þannig að íslenskt atvinnulíf vill halda áfram að vera leiðandi og leggja sitt af mörkum í baráttunni við loftslagsvána.
Því miður virðist áhersla stjórnvalda í loftslagsmálum enn í of miklum mæli beinast að þvingunum og kvöðum. Sem dæmi er í uppfærðri aðgerðaáætlun í loftslagsmálum gert ráð fyrir að þrír fjórðu af árangrinum komi frá bönnum og kvöðum. Þessi nálgun er líkleg til að hindra framþróun og nýsköpun í atvinnulífinu.
Hvatar verka eins og blítt vorregn sem nærir frjóan jarðveg nýsköpunar og framfara, á meðan kvaðir og bönn eru eins og þungir múrar sem skyggja á framtíðarsýn fyrirtækja. Með öflugum hvötum til grænna fjárfestinga geta stjórnvöld stutt við uppbyggingu þeirrar þekkingar, tækni og innviða sem nauðsynleg er til að draga markvisst úr losun gróðurhúsalofttegunda. Í stað þess að þvinga fram breytingar með reglum og refsingum, ættu stjórnvöld að skapa umhverfi sem hvetur fyrirtæki til skynsamlegrar umbreytingar í átt að sjálfbærni. Þannig verður umbreytingin drifin áfram af tækifærum fremur en takmörkunum, og árangurinn í loftslagsmálum verður varanlegur.
Nú er lag fyrir stjórnmálaflokka að sýna framsýni og hugrekki - með því að styðja við grænar fjárfestingar í stað þvingana.
Með kosningar í nóvember standa stjórnmálaflokkar frammi fyrir einstöku tækifæri. Tækifæri til að tala til metnaðarfullra fyrirtækja sem vilja láta gott af sér leiða í baráttunni við loftslagsbreytingar. Með því að setja græna hvata á oddinn í stefnuskrám sínum geta flokkarnir sýnt að þeir skilji mikilvægi þess að fjárfesta í grænni framtíð og nýsköpun. Þannig færast lausnir framtíðarinnar nær okkur í dag og við tryggjum að Ísland verði í samkeppnishæfu umhverfi og áfram í fararbroddi í loftslagsmálum. Nú er lag fyrir stjórnmálaflokka að sýna framsýni og hugrekki - með því að styðja við grænar fjárfestingar í stað þvingana. Þannig geta þeir unnið með metnaðarfullum fyrirtækjum að því að byggja upp sjálfbært og samkeppnishæft atvinnulíf til framtíðar.
Leggjum áherslu á hvata til grænna fjárfestinga og tryggjum að umbreytingin verði drifin áfram af tækifærum og nýsköpun, fremur en hömlum og höftum
Greinin birtist fyrst á Vísi þann 14. nóvember.