1 MIN
Að gefnu tilefni
Í umræðu síðustu daga hafa einstakir fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar talað um að launafólk hafi verið svikið og gagnrýnt afstöðu Samtaka atvinnulífsins vegna forsendubrests kjarasamninga. SA hafna öllum ásökunum um svik af hálfu samtakanna enda hafa þau staðið að fullu við gerða samninga. Mikilvægt er að umræðan byggist á staðreyndum og gagnkvæmri virðingu svo að unnt sé að ná niðurstöðu um framhaldið.
Finna þarf lausn sem eykur kaupmátt og skapar skilyrði fyrir lægri vöxtum. Sameiginlegar greiningar SA, ASÍ og stjórnvalda sýna að kaupmáttur allra samfélagshópa hefur vaxið, en vonbrigði með þróun verðbólgu og vaxta eru skiljanleg. Ágreiningur um viðbrögð við þeirri stöðu réttlætir hins vegar ekki ásakanir um svik. Þrátt fyrir að efnahagsaðstæður hafi þróast með verri hætti en vonir stóðu til og kostnaður atvinnurekenda orðið meiri en gert var ráð fyrir við samningsgerðina hafa Samtök atvinnulífsins talað fyrir því að kjarasamningar haldi.
Háir vextir þrengja að fyrirtækjum ekki síður en heimilum. Við þessar aðstæður er ekki svigrúm til launahækkana umfram það sem þegar hefur verið samið um.
SA hafa lagt fram skýrt mat á stöðu atvinnulífsins. Það er ekki að skila auðu þótt niðurstaðan sé önnur en viðsemjendur okkar hefðu óskað. Fjölmörg fyrirtæki hafa svarað kalli Samtaka atvinnulífsins og tilkynnt um frystingu verðs eða lækkun á síðustu vikum.
Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að draga úr kostnaðarþrýstingi, meðal annars með því að stjórnvöld haldi aftur af skatta- og gjaldskrárhækkunum. Aðgerðir í þá átt hjálpa til við að verja kjarasamningana, en því miður stefnir í umtalsverðar skattahækkanir með nýjum fjárlögum.
SA vilja áfram vinna með verkalýðshreyfingunni og stjórnvöldum að niðurstöðu sem tryggir að samningarnir haldi og stuðlar að varanlegum stöðugleika.