1 MIN
Til mikils að vinna með samþættum norrænum markaði
Samtök atvinnulífsins hafa, ásamt systursamtökum sínum á Norðurlöndunum, gefið út rit um mikilvægi þess að efla sameiginlegan norrænan markað.
Ritið heitir Blueprint for an Integrated Nordic Market. Að því standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Dansk Industri, Svenskt Näringsliv, Næringslivets Hovedorganisasjon og Elinkeinoelämän keskusliitto. Meginboðskapurinn er að þótt lagalegur aðgangur að innri markaði Evrópu sé tryggður sé norrænn markaður enn talsvert frá því að virka sem ein heild. Fyrirtæki á Norðurlöndunum búa þannig enn við óþarfa hindranir í viðskiptum sín á milli, sem stafa ekki síst af ólíkri innleiðingu og framkvæmd sameiginlegra reglna. Tillögurnar sem ritið leggur fram kalla á pólitíska forystu og markvissa samvinnu stjórnvalda, með framtíðarsýn forsætisráðherra Norðurlanda 2030 að leiðarljósi.
Ávinningur einna mestur á Íslandi
Líkt og fram kemur í ritinu er mögulegur ávinningur metinn verulegur í öllum löndunum fimm. Landsframleiðsla gæti aukist um meira en 2,5% í Danmörku og Finnlandi og nær 4% í Svíþjóð. Í Noregi og á Íslandi gæti hún aukist um eða yfir 5%. Þá gæti útflutningur frá Svíþjóð til Íslands og Noregs nær tvöfaldast ef óþarfar hindranir væru fjarlægðar.
Fundur forystufólks í Kaupmannahöfn
Ritið var kynnt á árlegum fundi forystufólks norrænna atvinnurekendasamtaka í Kaupmannahöfn þann 28. september. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, sótti fundinn fyrir hönd SA ásamt öllum helstu formönnum og framkvæmdastjórum atvinnurekendasamtaka Norðurlanda. Í tengslum við fundinn voru Novo Nordisk Foundation og Microsoft Quantum Lab heimsótt. Einnig var fundað með Maciej Witucki, nýjum forseta BusinessEurope, og Monica Rubin, ráðherra norrænnar samvinnu í Danmörku.