15. október 2026

Stærsta „ríki“ í Evrópu?

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Stærsta „ríki“ í Evrópu?

Útgjöld hins opinbera á Íslandi eru mikil í alþjóðlegum samanburði. Ellilífeyrisgreiðslur fara að litlu leyti í gegnum ríkissjóð og útgjöld til varnarmála eru afar takmörkuð hér á landi. Auk þess erum við ung þjóð og útgjöld vegna heilbrigðismála ættu því að geta verið hófleg í samanburði við eldri þjóðir. Vegna þessa ættu opinber útgjöld að vera minni en víðast hvar. Staðan er hins vegar sú að ef leiðrétt er fyrir þessum þáttum eru opinber útgjöld hvergi meiri í Evrópu. Því blasir við að vandi opinberra fjármála er ekki tekjuvandi, heldur útgjaldavandi.

Ákvarðanir um útgjöld hafa víðtæk áhrif á hagkerfið í gegnum innlenda eftirspurn, vinnumarkað og verðbólgu. Þau geta ýmist stutt við eða unnið gegn peningastefnunni og þegar verðbólga er yfir markmiði þurfa útgjöld ríkisins að stuðla að því að draga úr verðbólguþrýstingi. Þar skiptir samsetning útgjaldanna meira máli en það hvort ríkissjóður sé rekinn með smávægilegum halla eða afgangi.

Samsetning og þróun ríkisútgjalda er orðið áhyggjuefni, þar sem stórir útgjaldaliðir hafa verið, og eru enn, að þróast með ósjálfbærum hætti. Í rekstrarútgjöldunum vega laun og fjárframlög sérstaklega þungt, en þau útgjöld aukast mest milli ára sem hlutfall af VLF. Á sama tíma dregst fjárfesting í efnislegum eignum saman úr 2,2% í 1,9% af VLF og verður sú minnsta í áratug. Boðað aðhald kemur því fram í minni fjárfestingu á meðan launakostnaður og fjárframlög, einna helst almannatryggingar, aukast enn sem hlutfall af landsframleiðslu.

Fjárframlög eru greiðslur ríkissjóðs til einstaklinga, sveitarfélaga og annarra aðila án þess að ríkið fá beina þjónustu á móti. Þar vega lífeyristryggingar þyngst (40%) í frumvarpinu og samanstanda að stærstum hluta af greiðslum vegna örorku og ellilífeyris. Útgjöld til lífeyristrygginga hafa vaxið hratt undanfarin ár og með breytingum sem taka gildi 1. janúar 2027 munu fjárhæðir bóta innan lífeyristrygginga nú fylgja þróun launavísitölu.

Ef útgjöld eru skoðuð eftir hagrænni skiptingu sést hvernig þessir tveir liðir, laun og lífeyristryggingar, hafa þróast undanfarin ár og hvernig þessi kostnaður tekur sífellt meira pláss í ríkisfjármálunum á kostnað t.d. fjárfestingar. Frá 2024 hefur hlutfall þessara útgjalda af frumútgjöldum aukist úr 34% í 41% í frumvarpinu 2027.

Greinin er hluti af umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til fjárlaga 2027.

Samtök atvinnulífsins