16. nóvember 2026

Sátt um velferð og verðmætasköpun

Arnar Birkir Dansson

1 MIN

Sátt um velferð og verðmætasköpun

Samfélagsleg sátt hefur ríkt um mikilvægi þess að stutt sé vel við þá sem höllum fæti standa í samfélaginu enda er velferðarkerfið fyrirferðarmikið í íslensku samfélagi. Minna hefur farið fyrir umræðu um sjálfbærni velferðarkerfisins og hvernig loforð og skuldbindingar þess séu tryggð til framtíðar.

Þróun almannatryggingakerfisins undanfarin ár vekur spurningar um forgangsröðun og sjálfbærni ríkisfjármála. Vaxandi útgjöld til málaflokksins þrengja svigrúmið til annarra verkefna og fjárfestingar í innviðum. Þannig tók nýtt örorkukerfi gildi á síðasta ári sem skilaði flestum bótaþegum auknum tekjum. Í kjölfarið voru bæturnar beintengdar launavísitölu sem tryggir verulegar áframhaldandi hækkanir, óháð stöðu hagkerfisins eða ríkissjóðs og raunar óháð fjárhagslegri stöðu þeirra sem reiða sig á bætur almannatrygginga.

Fátt jafn varanlegt og tímabundnar aðgerðir

Samhliða þessum breytingum hafa aðrar aukagreiðslur staðið óhaggaðar, til að mynda sérstök eingreiðsla og desemberuppbót henni til viðbótar sem nú stendur til að gera varanlega. Eingreiðslu til örorku- og ellilífeyrisþega var upphaflega komið á fót í heimsfaraldrinum til að mæta þeim sérstöku aðstæðum sem þá voru uppi. Rökin fyrir eingreiðslunni voru veik þá, en eru vart sterkari nú þegar faraldrinum er löngu lokið.

Það er verulegt áhyggjuefni að við ákvörðun og lögfestingu allra þessara ólíku greiðslna er hvergi lagt mat á fjárhaglega stöðu þeirra hópa sem falla undir kerfið, né samspil greiðslnanna við kjör fólks á vinnumarkaði. Safnast þegar saman kemur og nú er komin upp sú staða að í mörgum tilvikum er orðið fjárhagslega hagkvæmara að standa innan almannatryggingakerfisins en utan þess.

Réttlætanleg forgangsröðun?

Ríkisstjórnin hefur lagt ríka áherslu á hallalaus ríkisfjármál, sem þýðir að vöxtur í bótakerfinu birtist í niðurskurði í öðrum málaflokkum og vaxandi skattbyrði. Er réttlætanlegt að lögfesta úrræði, sem átti að vera tímabundið og mun kosta ríkissjóð um 2 milljarða á ári, án þess að sýnt hafi verið með skýrum hætti fram á nauðsyn þess?

Samkvæmt nýrri greiningu um tekjuþróun og fjárhagsstöðu samfélagshópa, sem unnin var af undirhóp í þríhliða samtali ríkisins, ASÍ og SA sumarið 2026, kemur fram að hin meinta kjaragliðnun milli lífeyrisþega og fólks á vinnumarkaði stenst enga skoðun. Þvert á móti hefur kaupmáttur örorkulífeyrisþega vaxið tvöfalt meira en fullvinnandi fólks árlega allt frá árinu 2018. Meta þarf heildstætt samspil bóta, uppbóta, niðurgreiðslna og skerðinga áður en bætt er enn frekar í kerfið og samþykktar eru fleiri varanlegar skuldbindingar.

Tryggja þarf undirstöður velferðarinnar

Þó framlenging eingreiðslunnar geti virkað sem léttvægt mál eitt og sér er hún hluti af mun stærri spurningum um ábyrga forgangsröðun í ríkisfjármálum og samspil bótakerfisins við vinnumarkað.

Öflugt atvinnulíf, góð atvinnuþátttaka og verðmætasköpun standa undir velferðinni, sem við viljum svo sannarlega að sé til staðar á Íslandi. Aukin skattheimta á atvinnulíf og niðurskurður í verðmætaskapandi innviðafjárfestingu er hins vegar síst til þess fallið að styrkja undirstöður velferðarkerfisins til framtíðar.

Hönnun almannatryggingakerfa er jafnvægislist þar sem styðja þarf vel við þá sem á þurfa að halda, án þess að grafa undan vinnumarkaði eða sjálfbærni ríkisfjármála. Það má aldrei gleymast að öflugt atvinnulíf með tilheyrandi verðmætasköpun er forsenda þess að hægt sé að standa undir sterku velferðarkerfi. Óskandi væri að um það gæti skapast sambærileg samfélagsleg sátt.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 14. nóvember, 2026.

Arnar Birkir Dansson

Hagfræðingur á efnahagssviði Samtaka atvinnulífsins