1 MIN
Fyrirtæki búa sig undir fækkun starfa
Stjórnendur stærstu fyrirtækja landsins telja aðstæður í efnahagslífinu áfram slæmar, fjórða ársfjórðunginn í röð. Væntingar þeirra til næstu sex mánaða versna og hafa ekki verið lægri frá 2018. Samhliða lakari væntingum fjölgar fyrirtækjum sem sjá fram á fækkun starfsfólks. Þetta kemur fram í nýrri könnun Gallup sem er framkvæmd ársfjórðungslega fyrir Seðlabanka Íslands og Samtök atvinnulífsins.
Gildi vísitölu efnahagslífsins ná frá 0 í 200. Ef gildið mælist 200 eru telja allir stjórnendur aðstæður góðar, en ef gildið er 0 telur enginn stjórnandi aðstæður góðar. Sé gildið 100 telja jafn margir aðstæður góðar og slæmar. Vísitala efnahagslífsins mælist nú 19 stig og hækkar lítillega frá síðustu könnun. Hún mælir hvernig stjórnendur meta aðstæður í efnahagslífinu nú. Stjórnendur telja þó litlar líkur á viðsnúningi á næstunni þar sem vísitalan horft sex mánuði fram í tímann lækkar milli mælinga um tíu stig og mælist nú 26 stig. Talsvert fleiri stjórnendur búast því við að aðstæður versni en batni á næsta hálfa ári.
Horfur versna á vinnumarkaði
Áfram hyggja færri fyrirtæki á ráðningar og skortur á starfsfólki mælist lágur í sögulegu samhengi. Um 15% fyrirtækja glíma við skort á starfsfólki nú. Til samanburðar var hlutfallið yfir 50% þegar mest lét árið 2022. Skortur á vinnuafli, sem lengi var eitt helsta áhyggjuefni fyrirtækja, hefur því minnkað hratt samhliða kólnun hagkerfisins. Um 9% stjórnenda telja að starfsfólki innan fyrirtækisins muni fjölga næsta hálfa árið en 34% telja að því muni fækka.
Veik eftirspurn innanlands
Væntingar um innlenda eftirspurn eru áfram neikvæðar. Um 19% fyrirtækja búast við aukinni eftirspurn á næstu sex mánuðum en 29% telja að hún muni minnka. Vísitala innlendrar eftirspurnar mælist 82 stig.
Önnur mynd blasir við á erlendum mörkuðum. Vísitala erlendrar eftirspurnar hækkar um 25 stig og mælist 117 stig. Jákvæðustu merkin koma því frá fyrirtækjum sem sækja tekjur út fyrir landsteinana.
Fjárfestingarhorfur batna einnig nokkuð. Fjárfestingarvísitalan hækkar um 18 stig, en mælist þó aðeins 79 stig. Fleiri fyrirtæki gera því enn ráð fyrir minni fjárfestingu en meiri miðað við árið á undan.
Afkoma undir þrýstingi
Rekstrarskilyrði fyrirtækja eru áfram erfið. Fjögur af hverjum tíu fyrirtækjum telja að hagnaður sem hlutfall af veltu verði minni í ár en í fyrra. Aðeins 17% búast við meiri hagnaði.
Vísitala framlegðar síðustu sex mánaða lækkar um 12 stig og mælist 73 stig. Væntingar til næstu sex mánaða eru litlu betri, en vísitala þeirra mælist 70 stig.
Fyrirtæki áætla að verð á eigin vörum og þjónustu hækki að meðaltali um 2% næstu sex mánuði, á meðan þau gera ráð fyrir 4,1% hækkun aðfangaverðs. Það bendir til áframhaldandi þrýstings á framlegð.
Launakostnaður helsti verðhækkunarþátturinn
Launakostnaður er langalgengasta ástæða þess að fyrirtæki telja sig þurfa að hækka verð. Rúmlega 55% nefna launakostnað sem þann þátt sem hafi mest áhrif til verðhækkana á næstu sex mánuðum. Næst kemur aðfangaverð, sem tæplega 23% fyrirtækja nefna.
Verðbólguvæntingar stjórnenda eru jafnframt fastar yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans. Miðgildi væntinga er 4,7% eftir eitt ár og 4% bæði eftir tvö ár og að meðaltali næstu fimm ár. Stjórnendur telja að meginvextir verði 7% eftir tólf mánuði.
Könnunin var framkvæmd dagana 17. ágúst til 17. september 2026. Alls svöruðu 223 fyrirtæki og var svarhlutfall 47,5%.