1 MIN
Fjárlagafrumvarpið fellur á hagvaxtarprófinu
„Verkefni stjórnvalda í efnahagsmálum er tvíþætt: að stuðla að stöðugleika og styðja við hagvöxt. Þó gert sé ráð fyrir hallaleysi byggir frumvarpið á bjartsýnum forsendum og fellur á hagvaxtarprófinu. Samtök atvinnulífsins leggja áherslu á að verðmætin sem standa undir samneyslunni verða til í atvinnulífinu. Það eru fyrirtæki landsins sem skapa störfin, greiða launin og standa undir skatttekjunum. Af þeim sökum er mikilvægt að hið opinbera taki ekki til sín of mikið súrefni frá atvinnulífinu,“ segir í umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til fjárlaga 2027.
Hér að neðan er samantekt úr umsögninni:
- Útgjöld hins opinbera eru þau mestu meðal Evrópuríkja þegar leiðrétt hefur verið fyrir lífeyriskerfum, útgjöldum til varnarmála og aldurssamsetningu þjóðarinnar.
- Stórir útgjaldaliðir stjórnast af launaþróun, sem hefur víðtæk og sjálfvirk áhrif á ríkisútgjöld. Umbætur á umgjörð kjarasamningagerðar eru nauðsynlegar til að ná tökum á launaþróun, ríkisútgjöldum og verðbólgu.
- Stöðugleikareglan býr yfir ágalla sem vanmetur raunþróun ríkisútgjalda og girðir ekki fyrir ósjálfbæra þróun. Veruleg hækkun launa eða bóta endurspeglast ekki í reglunni.
- Skattahækkanir stjórnvalda byggja á rangri greiningu – ríkissjóður glímir við útgjaldavanda, ekki tekjuvanda. Sértækir skattar á atvinnustarfsemi skaða hagvöxt, munu ekki skila áætluðum tekjum og grafa undan skattstofnum framtíðarinnar.
- Forsendur fjárlagafrumvarpsins endurspegla óraunhæfar væntingar um tekjur og útgjöld. Auðvelt er að teikna upp raunhæfa sviðsmynd sem skilar tugum milljarða verri afkomu en ráðgerð er. Ákvarðanir í ríkisfjármálum þurfa að byggja á raunhæfum væntingum.
- Ríkissjóður leikur stórt hlutverk þegar kemur að verðbólgu og ekki síður verðbólguvæntingum. Ríkið þarf að ganga fram með góðu fordæmi við hækkun gjalda, draga til baka launavísitölutengingu almannatrygginga og virða launastefnu almenna markaðarins.
- Veruleg lánsfjárþörf ríkissjóðs og hækkandi skuldahlutfall er áhyggjuefni. Sala eigna, sem ekki standa rök til að séu í ríkiseigu, myndi bæta skuldastöðuna, draga úr lánsfjárþörf og létta á vaxtabyrði.