1 MIN
Haustskýrsla kjaratölfræðinefndar 2026
Núverandi kjarasamningslota hófst í mars 2024 og hafa um 260 kjarasamningar verið gerðir sem ná til allflests launafólks á almennum og opinberum vinnumarkaði. Almennt var samið til fjögurra ára og farin blönduð leið krónutölu- og prósentuhækkana. Forsenduákvæði kjarasamninga um verðbólgu í ágúst 2026 stóðust ekki, en samkomulög náðust í október um að samningar héldu gildi sínu.
Í nýrri skýrslu kjaratölfræðinefndar er fjallað um kjarasamninga, þróun launa, vinnumarkaðar og efnahagsmála.
Nýtt í skýrslunni að þessu sinni er greining á launabreytingum umfram kjarasamningsbundnar hækkanir. Greiningin var unnin að beiðni stýrihóps stjórnvalda, SA og ASÍ og er ætlað að varpa ljósi á umfang og þróun launaskriðs. Í því skyni er m.a. birt frummat á innbyggðum hækkunum kjarasamninga sem skýrast að miklu leyti af sjálfvirkum hækkunum vegna starfsaldurs. Í skýrslunni er auk þess sérstök umfjöllun og tölfræði um launabreytingar eftir launastigi, sem varpar ljósi á dreifingu launaþróunar.
Sundurliðuð gögn um launaþróun eftir mörkuðum og heildarsamtökum liggja fyrir frá upphafi núverandi lotu fram til júní 2026. Grunntímakaup á almennum markaði hækkaði um 18,4%, hjá ríki um 19,6%, hjá Reykjavíkurborg um 18,8% og hjá sveitarfélögum utan Reykjavíkur um 20,1%. Á vinnumarkaðnum í heild hækkaði grunntímakaup um 18,7% á tímabilinu en vísitala neysluverðs um 12,2%. Kaupmáttur grunntímakaups jókst því um 5,8%. Regluleg mánaðarlaun fullvinnandi á vinnumarkaði mældust að meðaltali 935 þúsund krónur í maí 2026 og miðgildi reglulegra launa 843 þúsund krónur.
Hagvöxtur hefur verið lítill síðustu ár og dregið hefur úr spennu á vinnumarkaði. Í alþjóðlegum samanburði hefur atvinnuleysi hér á landi verið tiltölulega lágt. Það hefur hins vegar aukist og var á öðrum ársfjórðungi 2026 yfir meðaltali OECD í fyrsta sinn frá árinu 2010.
Verðbólga hefur reynst þrálátari en spár gerðu ráð fyrir og mældist 5,9% í október. Horfur um verðbólgu ráðast að verulegu leyti af þróun stríðsátaka og áhrifum þeirra á alþjóðlegt orkuverð. Fjárhagsstaða heimila er þó almennt sterk, kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hefur aukist og skuldir heimila hafa lækkað sem hlutfall af ráðstöfunartekjum.