18. nóvember 2026

Fundur um samspil atvinnustefnu og skattkerfis

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fundur um samspil atvinnustefnu og skattkerfis

Styðja fyrirhugaðar skattabreytingar við markmið stjórnvalda um meiri fjárfestingu, aukna framleiðni og sterkari útflutning? Samtök atvinnulífsins boða til hádegisfundar um samspil atvinnustefnu, skattkerfis og ríkisfjármála, þriðjudaginn 24. nóvember kl. 11:30–13:00 á Nauthóli.

Á fundinum verður rætt um samanlögð áhrif skattabreytinga á uppbyggingu, störf og lífskjör. Sjónum verður beint að því hvernig ákvarðanir í fjárlagafrumvarpinu samræmast atvinnustefnu stjórnvalda og hvaða leiðir styðja bæði við sjálfbær ríkisfjármál og öflugt atvinnulíf.

Alexander Mengden, hagfræðingur hjá Tax Foundation, flytur erindi um skattkerfi. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, ræðir við Tönyu Zharov, fyrrverandi fulltrúa í atvinnustefnuráði stjórnvalda, um atvinnustefnuna og hvernig hún birtist í ákvörðunum stjórnvalda.

Markmiðið er að horfa á heildarmyndina: Hvernig skapa megi fyrirtækjum svigrúm til að fjárfesta og vaxa og styrkja þannig grunninn að bættum lífskjörum og tekjum ríkisins til framtíðar.

Samtök atvinnulífsins