1 MIN
Forgangslisti atvinnulífsins í smíðum
Hagsmunagæsla í Brussel
Framkvæmdastjórn og starfsfólk Samtaka atvinnulífsins, ásamt framkvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins, fóru í vinnuferð til Brussel dagana 2. til 5. október. Þar voru lagðar áherslur á forgangslista og skipulag í hagsmunagæslu atvinnulífsins í Evrópumálum.
Vinnuferðin byrjaði á heimsókn til ESA (Eftirlitsstofnunar EFTA) þar sem Árni Páll Árnason, sitjandi varaforseti ESA, hélt kynningu á starfinu. Þá var heimsókn í sendiráð Íslands þar sem Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands, fór yfir stöðu nokkurra lykilmála. Í kjölfarið var formleg heimsókn til BusinessEurope (Evrópusamtök atvinnulífsins) þar sem bæði SA og SI eru aðilar. Lokahnykkur ferðarinnar var svo tekinn á skrifstofum EFTA þar sem starfsfólk tók vel á móti hópnum.
Ferðin var einkar vel heppnuð að sögn hópsins og af nægu að taka í framhaldi af henni þar sem forgangslista íslensks atvinnulífs í Evrópumálum verður fylgt eftir.

Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, Marcus Beyrer, framkvæmdastjóri Business Europe og Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA

Ferðahópurinn ásamt starfsfólki EFTA skrifstofunnar
Talið efst frá vinstri: Guðmundur Heiðar Guðmundsson, ritari stjórnar og lögmaður á vinnumarkaðssviði SA, Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri og forstöðumaður efnahagssviðs SA, Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA, Guðmundur Kristjánsson, stjórnarmaður SA, Pétur Óskarsson, formaður SAF og stjórnarmaður SA, Heiðrún Björk Gísladóttir, lögmaður og fastafulltrúi SA hjá Business Europe, Edda Rut Björnsdóttir, varaformaður SVÞ og stjórnarmaður SA og Benedikt Gíslason, formaður SFF og stjórnarmaður SA, Jónína Guðmundsdóttir, varaformaður SI og stjórnarmaður SA, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Marcus Beyrer, framkvæmdastjóri Business Europe, Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, Jón Ólafur Halldórsson, formaður SVÞ og stjórnarmaður SA.