29. Apr

Stöðugleikarnir á Akureyri

Hero icon

dags

29. apríl 2024

tími

kl. 11:30 - 13:30

staður

Hamraberg, Hofi, Akureyri

Akureyri | Hamraborg, Hofi | 29. apríl | 11:30 – 13:30 | Hádegisverður í boði

Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra, Ásthildur Sturludóttir , bæjarstjóri á Akureyri, Aðalsteinn Árni Baldursson , formaður Framsýnar stéttarfélags Þingeyinga, og Bjarnheiður Hallsdóttir , framkvæmdastjóri Kötlu DMI og varaformaður SA, taka þátt í umræðum undir stjórn Sigríðar Margrétar Oddsdóttur , framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Þá flytja Gunnar Egill Sigurðsson , forstjóri Samkaupa. og Vilborg Jóhannsdóttir , framkvæmdastjóri Bravo ehf. og kaupmaður í Centró á Akureyri, hugvekjur.

Stöðugleikarnir 

Stöðugleikasamningurinn markaði vatnaskil á vinnumarkaði þar sem hóflegum launahækkunum til fjögurra ára er ætlað að skapa skilyrði fyrir stöðugleika. Aðilar vinnumarkaðarins lögðu þannig sitt af mörkum til efnahagslegs stöðugleika komandi ára.

Stöðugleiki kemur hins vegar ekki af sjálfu sér þrátt fyrir góða niðurstöðu kjarasamninga. Horfa þarf fram á veginn og tryggja að kjarasamningar verði til þess að draga úr verðbólguþrýstingi, en ekki öfugt. Atvinnulíf og stjórnvöld þurfa að rísa undir sinni ábyrgð og vera samtaka. Þannig er hægt að ná tökum á verðbólgunni og eygja von um lækkun vaxta.

Á þessum grunni hefja Samtök atvinnulífsins eftirfylgni við kjarasamninga undir yfirskriftinni Stöðugleikarnir. Stöðugleikarnir fara fram með hækkandi sól og samanstanda af opnum fundum fyrir atvinnulíf, stjórnvöld og almenning og fjölbreyttu miðlunarefni og samtali. Þá verður bætt í upplýsingagjöf til aðildarfyrirtækja SA um tæknileg útfærsluatriði kjarasamninganna.

Sofnum ekki á verðinum. Verkefnið er ekki búið.

Verum samtaka um aukna hagsæld.

Skráning á viðburð