dags
24. nóvember 2026
tími
kl. 11:30 - 13:00
staður
Nauthólsvegur 106
Meiri fjárfesting, aukin framleiðni og sterkari útflutningur eru meðal markmiða atvinnustefnu stjórnvalda. Hvernig samræmast fyrirhugaðar skattahækkanir þeim markmiðum? Hvað þýða samanlögð áhrif þeirra fyrir uppbyggingu, störf og lífskjör á Íslandi?
Samtök atvinnulífsins boða til fundar um samspil atvinnustefnu, skattkerfis og ríkisfjármála. Rætt verður hvernig skapa megi traustan grunn undir tekjur ríkisins og svigrúm fyrir fyrirtæki til að fjárfesta og vaxa.
Alexander Mengden, hagfræðingur hjá Tax Foundation, flytur erindi um skattkerfi.
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, ræðir við Tönyu Zharov, fyrrum meðlim í atvinnustefnuráði stjórnvalda, um atvinnustefnuna og hvernig hún birtist í ákvörðunum stjórnvalda.
Á fundinum verður horft á heildaráhrif skattabreytinga og hvaða leiðir styðja bæði við sjálfbær ríkisfjármál og bætt lífskjör.
