dags
01. október 2026
tími
kl. 15:00 - 17:00
staður
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
Ákvarðanir á vinnumarkaði hafa áhrif á hvert einasta fyrirtæki í landinu og á hagkerfið í heild sinni. En þjóna leikreglurnar fyrirtækjum og almenningi nægilega vel?
Á ársfundi Samtaka atvinnulífsins í Silfurbergi í Hörpu þann 1. október beinum við sjónum okkar að vinnumarkaðslíkaninu og samkeppnishæfni Íslands. Hvernig sköpum við forsendur fyrir stöðugleika, kaupmætti og samkeppnishæfu atvinnulífi?
Taktu þátt í umræðu sem mótar samfélagið. Aðgangur er ókeypis en mikilvægt að skrá sig í skráningarforminu hér að neðan.
Dagskrá fundarins:
- Ávarp frá Jóni Ólafi Halldórssyni, formanni Samtaka atvinnulífsins.
- Ávarp frá Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra Íslands.
- Pallborðsumræður: Hvað þarf til að sækja fram?
Þátttakendur í pallborði: Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, Birna Ósk Einarsdóttir, forstjóri Húsasmiðjunnar, Skúli Mogensen, frumkvöðull, og Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku. Stjórnandi: Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs SA. - Ávarp frá Rannveigu Rist, fyrrverandi forstjóra Rio Tinto á Íslandi.
- Pallborðsumræður: Hvernig rjúfum við vítahringinn?
Þátttakendur í pallborði: Bryndís Hlöðversdóttir, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og fyrrverandi ríkissáttasemjari, Gylfi Jónu Arnbjarnarson, ráðgjafi og fyrrverandi forseti ASÍ, og Þorsteinn Víglundsson, formaður Samtaka iðnaðarins, forstjóri Hornsteins og fyrrverandi framkvæmdastjóri SA. Stjórnandi: Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA. - Sækjum fram, erindi frá Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra SA.
Húsið opnar kl. 14:30 og stendur fundurinn yfir frá kl. 15-17. Að fundi loknum verður móttaka í Björtuloftum þar sem við höldum samtalinu áfram undir ljúfum tónum frá DJ Dóru Júlíu og með léttum veitingum.
