dags
16. nóvember 2023
tími
kl. 10:00 - 10:30
staður
Samtöl atvinnulífsins kynna umræðuþáttinn Hvert stefnir áliðnaðurinn í loftslagsmálum? Í þættinum ræðir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls við Sigríði Guðmundsdóttur sérfræðing Isal í kolefnisjöfnun og Guðlaug Bjarka Lúðvíksson framkvæmdastjóra öryggis-, umhverfis- og umbótasviðs hjá Norðuráli.
Nóvember er umhverfismánuður hjá Samtökum atvinnulífsins og aðildarsamtökum og í ár er sjónum beint að loftslagsmálum undir yfirskriftinni Á rauðu ljósi?
Hvern þriðjudag og fimmtudag í nóvember njótum við 20 mínútna áhorfs á Samtöl atvinnulífsins þar sem hver atvinnugrein ræðir áskoranir og tækifæri í loftslagsmálum. Hápunktur mánaðarins er svo Umhverfisdagur atvinnulífsins 29. nóvember þar sem þema mánaðarins er í hávegum haft og tileinkað Loftslagsvegvísum atvinnulífsins sem gefnir voru út í vor.