1 MIN
Taka þarf varanlegt tillit til sérstöðu Íslands í ETS
Samtök atvinnulífsins kalla eftir því að tekið verði varanlegt tillit til sérstöðu Íslands í viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir (ETS). Þetta kemur fram í umsögn samtakanna um tillögur framkvæmdastjórnar ESB að breytingum á kerfinu, sem kynntar voru í sumar. SA leggja áherslu á að regluverkið stuðli að raunverulegum samdrætti í losun án þess að skerða samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, veikja samgöngutengingar landsins eða draga úr fjárfestingum í orkuskiptum.
Ísland er hluti af innri markaði Evrópu en býr við aðrar aðstæður en flest ríki á meginlandinu. Langar vegalengdir, fámennur markaður og krefjandi veðurskilyrði á Norður-Atlantshafi hafa veruleg áhrif á flutningskostnað og möguleika fyrirtækja til að draga úr losun.
Flug og siglingar eru grundvallarforsenda alþjóðlegra viðskipta og verðmætasköpunar á Íslandi, enda eru aðrir flutningsmátar til og frá landinu ekki í boði. Þar sem raunhæfir kostir til að draga úr losun eru takmarkaðir geta auknar álögur hækkað flutningskostnað og veikt samkeppnisstöðu fyrirtækja án þess að skila samsvarandi samdrætti í losun.
Lausnir sem renna ekki út á tíma
Í umsögninni er vísað til tveggja rannsókna DNV sem sýna hvernig fjarlægðir og veðurskilyrði auka orkunotkun og kostnað vegna ETS í siglingum til Íslands.
Samkvæmt annarri rannsókninni ollu vindur og öldur því að orkuþörf gámaskipa á leiðum til Íslands var 17,2% meiri árið 2025, samanborið við 9,4% hjá evrópskum samanburðarhópi, miðað við siglingar í lygnum sjó.
Hin rannsóknin, sem var einnig unnin af DNV fyrir SA og Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ), sýnir að kostnaður vegna ETS á siglingaleiðinni milli Reykjavíkur og Rotterdam er að minnsta kosti 50% hærri á hverja ferð en á evrópskum samanburðarleiðum innan tiltekinna vegalengdarflokka.
SA styðja þá meginhugmynd, sem fram hefur komið í breytingartillögu á vettvangi Evrópuþingsins, að vegna tiltekinna siglinga milli meginlands og eyja þurfi aðeins að skila losunarheimildum fyrir 50% losunar. Tryggja verði að Ísland njóti sambærilegrar meðferðar og að slíkar lausnir falli ekki sjálfkrafa úr gildi, enda séu landfræðilegar aðstæður Íslands varanlegar.
Tryggja þarf fyrirsjáanleika í flugi
SA fagna því að framkvæmdastjórn ESB hafi lýst vilja til að framlengja núverandi sérlausn Íslands í ETS vegna flugs til ársins 2030. Samtökin leggja þó áherslu á að lausnin haldist óslitið að minnsta kosti út árið 2032, samhliða vinnu að varanlegri lausn.
Í umsögninni er vísað til efnahagslegrar greiningar Hagrannsókna, sem unnin var fyrir SA og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF). Niðurstöðurnar sýna að aukinn kostnaður vegna ETS getur haft áhrif langt út fyrir flugrekstur, meðal annars á ferðaþjónustu og þjóðarbúið í heild.
SA leggja áherslu á að reglurnar megi ekki skapa hvata til að færa flugumferð frá Íslandi til samkeppnisaðila erlendis án þess að það skili raunverulegum samdrætti í losun á heimsvísu.
Tekjurnar styðji orkuskipti
SA leggja áherslu á að tekjum af ETS verði varið til fjárfestinga sem gera fyrirtækjum kleift að draga úr losun, meðal annars með rafvæðingu, uppbyggingu orkuinnviða og þróun nýrrar tækni.
Jafnframt þurfi að verja evrópskan iðnað gegn kolefnisleka, þegar framleiðsla færist til ríkja þar sem vægari kröfur gilda um losun. SA styðja því hægari niðurfellingu úthlutunar losunarheimilda án endurgjalds til atvinnugreina sem falla undir kolefnisaðlögunarkerfi ESB (CBAM), auk áframhaldandi verndar fyrir atvinnugreinar utan kerfisins sem standa frammi fyrir hættu á kolefnisleka.
Þá kalla samtökin eftir endurskoðun á reglum um varaafl í fiskimjöls- og lýsisverksmiðjum, svo þær dragi ekki úr hvata fyrirtækja til rafvæðingar og frekari orkuskipta.
Fyrir Ísland snýst málið um að tryggja jafna samkeppnisstöðu, standa vörð um tengingar við erlenda markaði og afhendingaröryggi og viðhalda samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. SA leggja því áherslu á að sérstaða Íslands verði viðurkennd með varanlegum og raunhæfum lausnum innan ETS-kerfisins.