1 MIN
Fjölbreyttir vinnustaðir - öflugra atvinnulíf
Mikil gróska er á íslenskum vinnumarkaði og fjölbreytileiki eykst með ári hverju. Fjölbreytileikinn endurspeglast m.a. í kyni starfsfólks, kynhneigð, starfsfólki af erlendum uppruna, aldri og starfsfólki með fötlun eða skerta starfsgetu. Samtök atvinnulífsins (SA) hafa lengi bent á að aukinn fjölbreytileiki styrki vinnustaði og auki samkeppnishæfni þeirra. Ávinningur vinnustaða af fjölbreytileika er mikill því með fjölbreyttum mannauði eru vinnustaðir betur í stakk búnir til að takast á við fjölbreyttar áskoranir til dæmis í rekstri, framleiðslu og þjónustu, sjá grein: Fjölbreytileiki styrkir íslenskt atvinnulíf.
SA fara ekki varhluta af áhrifum fjölbreytileikans á almennum vinnumarkaði og mikilvægi þess að hlúa að honum. Það er mikilvægt að starfsfólk finni til öryggis og vellíðunar á vinnustað og vinnumarkaðurinn útiloki ekki einstaklinga eða hópa frá þátttöku. SA leggja sín lóð á vogarskálarnar með greiningu á stöðunni, átaksverkefnum, gerð fræðsluefnis og stöðugu samtali við atvinnulífið. Á heimasíðu SA er fróðleikur og fræðsluefni fyrir stjórnendur til að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu og hvernig best sé að tryggja heilsusamlegt og öruggt vinnuumhverfi, sjá hér: Félagslegt vinnuumhverfi - af hverju skipta góð samskipti á vinnustað máli?
SA ítreka mikilvægi upplýstrar umræðu um mikilvægi fjölbreytileika á vinnumarkaði. Það stuðlar að betri frammistöðu starfsfólks og fyrirtækja og hefur jákvæð samfélagsleg áhrif. Undanfarin ár hafa SA ásamt fulltrúum Landlæknisembættisins, Jafnréttisstofu og öðrum aðilum vinnumarkaðarins unnið með Vinnueftirlitinu að gerð fræðsluefnis og verkfærum fyrir stjórnendur og starfsfólk um heilbrigða vinnustaðamenningu og hvernig hægt er að búa öllum gott starfsumhverfi. Fræðsluefni og verkfæri hafa verið þróuð til að stuðla að heilbrigðri vinnustaðamenningu og skapa traust í samskiptum á vinnustöðum. Verkfærunum er ætlað að styðja við bæði stjórnendur og starfsfólk í að vinna saman að heilbrigðu og öruggu vinnuumhverfi fyrir allt starfsfólk. Samtök atvinnulífsins hafa einnig útbúið sérstakan sáttmála gegn einelti, áreitni og ofbeldi og hvetja starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja til að gera gildi hans hluta af daglegum rekstri.
Formaður SA skrifaði í dag, ásamt dómsmálaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, formanni Samtakanna'78 og formönnum heildarsamtaka launafólks, undir viljayfirlýsingu um samstarf með það að markmiði að stuðla að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði. Stofnaður verður aðgerðahópur sem mun vinna að gerð fræðsluefnis, aðgerðum og verkfærum fyrir vinnustaði ásamt því að byggja upp frekari þekkingu með rannsóknum. Markmið samstarfsins er að stuðla að öryggi og vellíðan á starfsfólks á vinnumarkaði sem skilar betri árangri vinnustaða og jákvæðum áhrifum fyrir samfélagið í heild.