1 MIN
„Öflugur vinnumarkaður byggir á því að allir fái að njóta sín”
Dómsmálaráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, Samtökin '78, Samtök atvinnulífsins og heildarsamtök launafólks undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um samstarf með það að markmiði að stuðla að jafnrétti, fjölbreytileika og inngildingu á íslenskum vinnumarkaði. Var viljayfirlýsingin undirrituð á viðburðinum Hýr vinnumarkaður sem haldinn var í Iðnó í tilefni Hinsegin daga.
Með viljayfirlýsingunni taka aðilar höndum saman og vinna markvisst að því að bæta stöðu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Í því skyni verður stofnaður aðgerðarhópur sem mun þróa fræðsluefni, verkfæri og aðgerðir fyrir vinnustaði auk þess að stuðla að aukinni þekkingu með rannsóknum og greiningum. Undir viljayfirlýsinguna undirrituðu þau Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrir hönd dómsmálaráðherra, Bjarndís Helga Tómasdóttir, formaður Samtakanna ’78, Finnbjörn Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, Kolbrún Halldórsdóttir, formaður BHM og Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB.
„Öflugur vinnumarkaður byggir á því að allir fái að njóta sín. Með þessu samstarfi erum við að stíga mikilvægt skref fyrir jafnrétti á vinnumarkaði, að fjölbreytileiki sé metinn að verðleikum og að starfsfólk upplifi öryggi og virðingu á sínum vinnustað,“ segir Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, sem undirritaði viljayfirlýsinguna fyrir hönd SA.
Aðgerðahópurinn mun meðal annars byggja á þeirri reynslu og þekkingu sem skapast hefur í gegnum Hinsegin vottun Samtakanna '78 og leiðbeiningar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO) um inngildingu hinsegin fólks á vinnumarkaði. Markmið samstarfsins er að stuðla að öryggi og vellíðan á starfsfólks á vinnumarkaði sem skilar betri árangri vinnustaða og jákvæðum áhrifum fyrir samfélagið í heild.