1 MIN
Hvatningarverðlaun jafnréttismála 2021
Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent 30. nóvember á rafrænum morgunfundi um jafnréttismál.
Hvatningarverðlaun jafnréttismála verða afhent 30. nóvember á rafrænum morgunfundi um jafnréttismál.
Veitt verða verðlaun í þremur flokkum, með áherslu á kynjajafnrétti, fjölmenningu og fötlun.
Leitað er eftir tilnefningum fyrirtækja sem leggja áherslu á neðangreinda þætti í sinni starfsemi:
- Tekið er mið af jafnréttismálum í allri stefnumótun fyrirtækisins.
- Unnið hefur verið að því að skapa góða fyrirtækjamenningu þar sem jafnrétti og virðing fyrir fjölbreytileika samfélagsins liggja til grundvallar.
- Horft er til jafnréttis í víðum skilningi, m.a. kynja, tækifæra innflytjenda, fatlaðs fólks og hinsegin fólks á vettvangi fyrirtækis.
- Aukinni vitund um þann ávinning sem jafnrétti í víðtækri merkingu hefur fyrir fyrirtækið og samfélagið.
- Fyrirtækið hefur lagt áherslu á samfélagslega ábyrgð og tekist á við áskoranir nútímans, m.a. mannréttindi, loftslagsmál og fátækt.
Að verðlaununum standa Samtök atvinnulífsins og Háskóli Íslands.