1 MIN
Aðhald og áhrif ríkisins á verðbólgu
Reynslan sýnir að allir armar hagstjórnarinnar, Seðlabankinn, aðilar vinnumarkaðarins og ríkið, þurfa að leggja sitt af mörkum til að unnt sé að ná niður verðbólgu og vöxtum. Í því ljósi er mikilvægt að töluvert aðhald sé boðað í ríkisfjármálum á næsta ári en eins og rakið hefur verið hér að framan má ekki mikið út af bregða til að aðhaldið verði minna eða hreinlega hverfi. Nú er gert ráð fyrir að aðhald ríkissjóðs, byggt á meðaltali þriggja mælikvarða, verði neikvætt um 0,1% á árinu 2026 sem þýðir að ríkissjóður er að ýta undir eftirspurn og þar með verðbólguþrýsting í ár, þvert á það sem boðað hefur verið.
Sporin hræða því í þessu samhengi, einkum þar sem mat á aðhaldi ríkissjóðs fyrir árið 2026 hefur farið versnandi síðustu misseri, jafnvel þó leiðrétt sé fyrir meiri hægagangi í hagkerfinu en áður var gert ráð fyrir. Það er nauðsynlegt að Alþingi sýni festu og aga til að aðhaldið haldist réttu megin við núllið fyrir næsta ár, enda er undirliggjandi afkoma ríkissjóðs enn of veik og aðhaldið hjálpar til við að þrýsta verðbólgu niður.
Það má enn fremur gera athugasemdir við misvísandi framsetningu aðhalds í fjárlögum sem að mati SA getur verið til þess fallið að skapa misskilning og flækja umræðu um opinber fjármál. Í greinargerð frumvarpsins er rætt um aðhald frá því sjónarhorni að fjárheimildir séu ónýttar, því sé unnt að færa þær fram um ár og lækka fyrri fjárheimildir. Vafasamt er að líta á slíkar aðgerðir sem aðhald þar sem um bókhaldslega færslu er að ræða. Út frá efnahagslegu sjónarmiði skiptir eingöngu máli hvenær þjónusta eða vara er veitt og hvenær greiðsla fer fram. Það skiptir hins vegar nánast engu máli hvenær heimild fyrir greiðslunni varð til.
Hlutverk ríkissjóðs í baráttu gegn verðbólgu nær langt út fyrir afkomuna
Þó að þróun afkomu skipti máli fyrir þróun verðbólgu og vaxta þá er af og frá að áhrif ríkisfjármála og ríkisins almennt á verðbólgu endi þar. Verðbólga er mjög væntingadrifin og því eru lágar verðbólguvæntingar lykiláhersla hjá seðlabönkum um allan heim. Ríkið getur haft afgerandi áhrif á verðbólguvæntingar með eigin gjörðum. Aðilinn sem hefur löggjafar- og framkvæmdavald og ráðstafar um þriðjungi af landsframleiðslu þarf að sýna í verki bjargfasta trú á 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans. Því miður eru tvær vísbendingar um að það sé ekki alltaf gert.
Hér er því miður lítið nýtt á ferðinni því í ár hafa beinar athafnir hins opinbera í sköttum og gjöldum verið til þess að auka verðbólgu eins og meðfylgjandi mynd sýnir með tvenns konar hætti. Annars vegar hafa skattbreytingar og verðbreytingar á opinberri þjónustu verið til þess fallnar að auka verðbólgu. Hins vegar hefur verðlag opinberrar þjónustu hækkað um 10,7% sl. 12 mánuði, leiðrétt fyrir breytingum á kílómetragjaldi. Annað verðlag hefur hækkað um nærri því helmingi minna. Hér er ekki einungis við ríkið að sakast og er stór hluti þessara hækkana fyrir tilstilli ákvarðana sveitarfélaga og fyrirtækja í eigu þeirra. Sveitarfélög hafa nýverið skuldbundið sig til þess að halda verðhækkunum innan við 2,5% á næstunni. Skaðinn í stefnu stjórnvalda er að einhverju leyti skeður vegna fyrri ákvarðana, en fyrsta skrefið í að snúa við af þeirri braut væri að krónutölugjöld, þar með talið kílómetragjald, hækki um eingöngu 2,5% eins og áður hefur verið rakið.
Í fyrsta lagi hafa nýlegar breytingar á almannatryggingum sett enn stærri hluta ríkisútgjalda á sjálfsstýringu í takt við þróun launa eins og fjallað var um í fyrri grein um vísitölutengingu bóta. Samtökin mótmæltu þeim breytingum eins og áður hefur komið fram, enda vinna þær gegn markmiðum í ríkisfjármálum og ógna verðstöðugleika. Með nýja fyrirkomulaginu er tryggt að áhrif ósjálfbærra launahækkana komi enn sterkar fram í eftirspurn og ríkisfjármálum með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á verðbólgu og vexti.
Í öðru lagi hefur ríkið gengið á undan með slæmu fordæmi í launahækkunum síðustu misseri eins og bent var á í fyrri grein um áhrif launaþróunar á ríkisfjármál. Þó að stjórnvöld þurfi að gera betur er ekki hjá því komist að undirliggjandi orsök felst í vinnumarkaðsumgjörð sem ítrekað leiðir til þeirrar niðurstöðu að einn hópur fer fram úr öðrum til þess eins að aðrir hópar komi síðar með sambærilegar kröfur. Niðurstaðan er launahækkanir sem eru nánast án undantekninga umfram það sem samsvarar raunverulegu svigrúmi og samræmist 2,5% verðbólgu. Lausnir til að brjótast út úr þeim vítahring eru til eins og sagt var frá í fyrri grein um umbætur á vinnumarkaðslíkaninu og lýsa samtökin sig reiðubúin að taka þátt í að vinna að slíkum úrbótum.
Skuldaþróun og lánsfjárjöfnuður
Líkt og SA hafa áður bent á er ekki nóg að horfa á afkomu ríkissjóðs út frá A-1 hluta heldur þarf að skoða þróun afkomu í víðara samhengi. Vegna mismunandi skilgreininga á ríkisaðilum og mismunandi reikningsskilastaðla er gagnlegt að horfa fram hjá slíku og spyrja einfaldlega hversu mikið ríkið er að eyða umfram það sem það hefur í tekjur þegar allt er tekið saman. Það kallast með öðrum orðum hreinn lánsfjárjöfnuður og segir til um hvort ríkið sé, nettó, að taka lán eða greiða þau upp og í hve miklum mæli. Frá því sjónarhorni skiptir t.d. ekki máli hvort ríkissjóður (A-1) framkvæmi verkefni eða veiti félagi, t.d. í A-3 hluta, fjármuni til að framkvæma.
Á mælikvarða hreins lánsfjárjöfnuðar hefur þróunin og staðan síðustu misseri verið nokkurt áhyggjuefni. Þó að afkoma A-1 á rekstrargrunni verði jákvæð um 5 ma.kr. á næsta ári er á sama tíma gert ráð fyrir að ríkið þurfi að óbreyttu að taka 68 ma.kr. hrein ný lán. Hætt er við því að lánsfjárjöfnuðurinn verði umtalsvert lakari í ljósi þess að spá um afkomu virðist fremur bjartsýn líkt og kom fram í fyrri grein um forsendur fjárlagafrumvarpsins. Stjórnvöld þurfa að vera meðvituð um þróun lánsfjárjafnaðarins og vera reiðbúin að grípa til ráðstafana ef tryggja á raunverulega sjálfbærni í rekstri ríkissjóðs.
Vegna mjög neikvæðs lánsfjárjafnaðar og veiks hagvaxtar eru skuldahlutföll ríkissjóðs að hækka hægt og bítandi. Frá fjármálaáætlun sem samþykkt var sl. vor hafa áætlaðar skuldir í ár og á því næsta hækkað um tæplega 1% af VLF. Skuldir hins opinbera eru langt frá markmiði skuldareglu og ljóst að sú regla verður ekki uppfyllt í nánustu framtíð. Þó að Ísland standi nokkuð vel í alþjóðlegum samanburði hvað varðar opinberar skuldir er þróunin áhyggjuefni sem stjórnvöld þurfa að vinna gegn með afgerandi hætti.
Með einföldun má segja að til þess að ná skuldahlutfallinu niður sé hægt að fara fjórar leiðir:
- Auka hagvöxt
- Ná niður vöxtum
- Bæta afkomuna
- Selja eignir
Á myndinni hér að neðan má sjá samband þessara stærða. Eftir því sem hagvöxtur er meiri, þeim mun lakari má afkoma ríkissjóðs vera án þess að það bitni á skuldahlutfallinu. Ef vextir hækka þarf afkoman fyrir vexti (frumjöfnuður) að vera þeim mun betri. Það segir sig síðan sjálft að því betri sem afkoman er því hagstæðari er skuldaþróunin að öðru óbreyttu.
Til að ná skuldahlutföllunum niður og til að Ísland sé betur búið undir möguleg áföll og áskoranir framtíðarinnar þurfa stjórnvöld með trúverðugum hætti að vinna að öllum þessum leiðum. Fyrirheitin eru góð en hljóð og mynd fara ekki alltaf saman. Skattastefna ríkisstjórnarinnar er sem fyrr segir ekki til þess fallin að auka hagvöxt. Eins og einnig hefur komið fram hafa launaþróun, breytingar á almannatryggingum og gjaldabreytingar ríkisins ekki verið til þess fallin að bæta afkomu ríkissjóðs eða draga úr verðbólgu og lækka þannig vexti. Þá eru sterkar vísbendingar um að afkoma ríkissjóðs verði umtalsvert verri á næsta ári heldur en frumvarpið bendir til. Hér þarf einfaldlega að gera betur svo að hægt sé að snúa skuldaþróun ríkissjóðs við.
Sala eigna gæti lækkað skuldir til skamms og lengri tíma
Stjórnvöld hafa takmörkuð áhrif á hagvöxt eða vaxtastig til skemmri tíma og óbein áhrif til lengri tíma. Þar að auki sýnir reynslan að stjórnmálin eru iðulega í vandræðum með að draga úr útgjöldum til þess að rétta af afkomuna. Í því samhengi er nauðsynlegt að horfa á fjórðu leiðina: Sölu eigna.
Ríkið sinnir meðal annars bankarekstri, áfengissölu, póstþjónustu og rekur fasteignir. Allt er þetta starfsemi sem einkaaðilum er fært að sinna og réttast er að ríkið einbeiti sér frekar að grunnþjónustu. Í Hagræðingartillögum SA frá árinu 2025 er lagt til að selja slíkar eignir sem, þegar leiðrétt er fyrir sölu Íslandsbanka, gætu skilað 274-414 ma.kr. í söluandvirði. Með því væri unnt að lækka skuldahlutföll ríkissjóðs um allt að 7,5% af VLF.
Sparnaðurinn myndi þó ná lengra því miðað við uppfært mat á verðmæti Landsbankans, sem byggist á markaðsvirði Arion og Íslandsbanka, má áætla að vaxtasparnaður að teknu tilliti til arðgreiðslna myndi nema um 10 ma.kr. á ári. Nýta mætti þann sparnað á hverju ári til þess að bæta skuldastöðuna enn frekar sem hjálpar við markmið um lægri vexti en umfram allt gerir ríkissjóð mun betur í stakk búinn að takast á við áföll í framtíðinni.
Greinin er hluti af umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til fjárlaga 2027.