Sjónvarp - 24.01.2025
Kynningarfundur um Unndísi
Vinnumálastofnun var með kynningarfund um Unndísi sem er verkfæri/leiðarvísir með innbyggðu matskerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir og styður við innleiðingu á inngildandi vinnustaðamenningu að teknu tilliti til fólks með mismikla starfsgetu.
Haustið 2025 taka gildi breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem fela í sér nýja hugsun sem ætlað er að leiði af sér meiri hvata til atvinnuþátttöku fólks með mismikla starfsgetu. Aukin atvinnuþátttaka þessa hóps kallar á fjölgun hlutastarfa á vinnumarkaði. Markmið Unndísar er að styðja með afgerandi hætti við fyrirtæki með ráðgjöf, fræðslu og eftirfylgd svo fjölgun hlutastarfa verði að veruleika.
Vinnumálastofnun hefur verið falið að leiða Unndísi með það að markmiði að ná til sem flestra fyrirtækja og stofnana. Á fundinum var farið yfir hvað þátttaka fyrirtækja í Unndísi felur í sér og hvaða stuðning Vinnumálastofnun veitir við innleiðinguna. Fulltrúar frá Öryrkjabandalagi Íslands voru einnig með innlegg á fundinum.