1 MIN
Í beinni: Vöxtur í orði - skattar á borði
Samtök atvinnulífsins boða til hádegisfundar um samspil atvinnustefnu, skattkerfis og ríkisfjármála. Rætt verður hvernig skapa megi traustan grunn undir tekjur ríkisins og svigrúm fyrir fyrirtæki til að fjárfesta og vaxa.
Alexander Mengden, hagfræðingur hjá Tax Foundation, flytur erindi um skattkerfi.
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, ræðir við Tönyu Zharov, lögfræðing, um atvinnustefnuna og hvernig hún birtist í ákvörðunum stjórnvalda.
Á fundinum verður horft á heildaráhrif skattabreytinga og hvaða leiðir styðja bæði við sjálfbær ríkisfjármál og bætt lífskjör.
Fundurinn fer fram á Nauthóli og er í beinu streymi hér að neðan frá kl. 11:30.