20. október 2023

Við getum gert betur 

Sigríður Margrét Oddsdóttir & Ragnar Árnason

1 MIN

Við getum gert betur 

Atvinnulífið styður baráttuna gegn mismunun og ofbeldi og mikilvægi þess að stöðugt sé minnt á skyldur atvinnulífsins og allra í samfélaginu. Atvinnulífið ber ótvíræðan hag af því að allt starfsfólk fái notið eigin verðleika og hafi jöfn tækifæri til launa, starfa og starfsþróunar óháð kynferði.

Boðað hefur verið til heils dags verkfalls kvenna og kvára 24. október næstkomandi til að mótmæla kynbundnu ofbeldi og mati á virði kvennastarfa. Haft hefur verið eftir formanni BSRB að tilgangurinn með verkfallinu sé „að valda usla“. Fyrirtækin, sem leggja í sinni starfsemi áherslu á jafnrétti og jafnræði, og vilja greiða leið þeirra sem vilja taka þátt í dagskrá kvennafrídagsins spyrja eðlilega af hverju það er sjálfstætt markmið skipuleggjenda að valda atvinnulífinu sem mestu tjóni þennan dag.

Mikið hefur áunnist frá kvennafrídeginum 1975. Ísland hefur verið í efsta sæti á lista Alþjóðaefnahagsráðsins yfir jafnrétti kynjanna fjórtán ár í röð. Listinn byggir á niðurstöðum skýrslunnar „Global Gender Gap Report 2023“. Þar er borin saman staða jafnréttismála í 146 löndum þegar kemur að stjórnmálum, atvinnu, menntun og heilbrigði.

Leiðréttur launamunur kynjanna var 4,1% árið 2020, líkt og fram kemur í greinargerð Hagstofunnar sem kom út haustið 2021. Kynbundin skipting í störf og atvinnugreinar skýrir að miklu leyti þann launamun sem enn er til staðar. Leiðréttur launamunur lækkaði úr 6,4% í 4,1% milli áranna 2008 og 2020. Óleiðréttur launamunur kynjanna lækkaði á árunum 2008-2022 úr 20,5% í 9,1%. Hagstofan reiknar þá meðaltímakaup karla annars vegar og kvenna hins vegar og mismunurinn telst vera óleiðréttur launamunur. Hluti þessa launamunar liggur í því að karlar vinna mun meiri yfirvinnu en konur, sem hækkar meðaltímakaup þeirra.

Hér geta aðilar vinnumarkaðarins haft áhrif. Það er sjálfsagt að umbunað sé sértaklega fyrir yfirvinnu, en hlutfall yfirvinnugreiðslna á almennum vinnumarkaði í heildarlaunum nam 18% á Íslandi árið 2017 en var á sama tímabili 2-6% í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Til þess að stíga skref í átt að launajöfnuði er nauðsynlegt að draga úr vægi yfirvinnugreiðslna í heildarlaunum. Það mun koma konum á vinnumarkaði sérstaklega til góða. Til að ná því markmiði er óhjákvæmilegt að endurskoða álagstímabil og álagsgreiðslur kjarasamninga fyrir vinnu utan dagvinnutímabils. Samtök atvinnulífsins eru tilbúin að taka þátt í samtali allra aðila á vinnumarkaði, almennra og opinberra atvinnurekenda og stéttarfélaga, til að vinna að því markmiði.

Vegna mótmæla á kvennafrídaginn 24. október er mikilvægt að konur og kvár, sem hyggjast taka þátt, óski með góðum fyrirvara eftir samtali við sinn atvinnurekanda um með hvaða hætti best er að koma við fjarvistum þennan dag ef þess er nokkur kostur en aðstæður í fyrirtækjum eru jafn misjafnar og þau eru mörg. Engin skylda hvílir á atvinnurekendum sem ákveða umfram skyldu að veita leyfi frá störfum að greiða laun í fjarvistum sem þessum.

Sigríður Margrét Oddsdóttir & Ragnar Árnason

Sigríður Margrét er framkvæmdastjóri SA og Ragnar er forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA