21. október 2026

Útgjaldavandinn hverfur ekki þótt skattarnir hækki

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Útgjaldavandinn hverfur ekki þótt skattarnir hækki

Samtök atvinnulífsins styðja almennt við markmið um hallalaus fjárlög en hafa í umsögnum bent á að leiðin að hallaleysi liggi í útgjaldaaðhaldi, ekki skattahækkunum. Eins og kom fram í fyrri grein eru umsvif hins opinbera á Íslandi með því mesta sem þekkist. Hin hliðin á þeim pening er að skattheimta er mikil í alþjóðlegum samanburði. Ekki ætti að líta á aukna skattheimtu sem skynsamlega lausn á ójafnvægi í ríkisfjármálum. Hærri skattar letja atvinnusköpun og fjárfestingu og því er hætt við því að aukin skattheimta skili sér ekki í auknum tekjum ríkissjóðs þegar upp er staðið. Þetta hafa fjölmargar erlendar rannsóknir staðfest.[1][2] Enda hafa t.d. Danmörk, Svíþjóð, Finnland og Þýskaland nýlega tilkynnt um skattalækkanir á fyrirtæki í því skyni að örva fjárfestingu og hagvöxt.

Skattahækkanir skila ekki alltaf áætluðum tekjum

Mörg dæmi eru um að skattabreytingar skili minni tekjum en áætlað var vegna vanmats á áhrifum þeirra á athafnir fólks. Innviðagjald á skemmtiferðaskip og hækkun vörugjalda á eldsneytisbíla eru nýleg dæmi. Skipakomum fækkaði talsvert í kjölfar innviðagjaldsins og dró það jafnframt úr öðrum skatttekjum. Þá dróst innflutningur eldsneytisbíla verulega saman samhliða aukinni sölu rafmagnsbíla sem bera engin vörugjöld. Útlit er fyrir að breytingin skili talsvert minni tekjum en reiknað var með og líkur eru á að tekjurnar séu enn ofmetnar miðað við þróun innflutnings ökutækja á árinu hingað til.

Meta þarf áhrifin og tryggja fyrirvara

Samtökin leggja áherslu á að við undirbúning skattabreytinga sé lagt heildstætt mat á áhrif þeirra og tekið tillit til þess að skattahækkanir hafa iðulega neikvæð áhrif á skattstofna. Jafnframt þarf að tryggja nægan fyrirvara við skattabreytingar, en á það hefur verulega skort að undanförnu. Til að mynda var kílómetragjaldið samþykkt 18. desember 2025 og tók gildi aðeins tveimur vikum síðar. Við innleiðinguna komu upp kerfisvillur hjá Skattinum, margar rangar kröfur voru sendar út, einstaklingar rukkaðir fyrir annarra manna bíla og fyrirtæki þurftu að aðlaga kerfi sín með skömmum fyrirvara.

Óvissa heldur aftur af fjárfestingu

Þegar skattar eru ítrekað hækkaðir með nær engum fyrirvara eykur það óvissu í rekstri fyrirtækja sem hefur neikvæð áhrif á fjárfestingar. Merki eru um aukna varfærni í fjárfestingum meðal fyrirtækja og samkvæmt könnun SA meðal félagsmanna sl. sumar vegur efnahagsleg óvissa þar þungt, þar á meðal óvissa um innlenda skatta og regluverk.

Greinin er hluti af umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til fjárlaga 2027.

Samtök atvinnulífsins