24. janúar 2025

Unndís opnar á ný tækifæri

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Unndís opnar á ný tækifæri

Í dag fór fram fræðslufundur með félagsmönnum SA þar sem farið var yfir breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem eiga að taka gildi haustið 2025. Breytingunum er m.a. ætlað að hvetja til atvinnuþátttöku fólks með mismikla starfsgetu t.d. með því að fjölga hlutastörfum.

Á fundinum var farið yfir Unndísi sem er leiðarvísir með innbyggðu matskerfi sem styður við innleiðingu á inngildandi vinnustaðamenningu. Markmið Unndísar er að styðja með afgerandi hætti við fyrirtæki með ráðgjöf, fræðslu og eftirfylgd svo fjölgun hlutastarfa fyrir fatlað fólk verði að veruleika. Ennfremur var farið yfir það hvað þátttaka fyrirtækja í Unndísi feli í sér og hvaða stuðning Vinnumálastofnun veitir fyrirtækjum við innleiðinguna.

Gunnar Alexander Ólafsson, hagfræðingur ÖBÍ, og Sara Dögg Svanhildardóttir, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun, héldu erindi ásamt Sunnu Elvíru Þorkelsdóttur, lögfræðingi hjá ÖBÍ, sem deildi reynslu sinni af atvinnuleit. Hún lýsti þeim fjársjóði sem felst í fólki sem býr yfir mikilvægri þekkingu og hæfni en hefur verið utan vinnumarkaðar t.d. vegna sjúkdóma eða slysa.

Upplýsingar fyrir atvinnurekendur er að finna á heimasíðu ÖBÍ og á Ísland.is má finna alls kyns hagnýtan fróðleik.

Upptaka af fundinum er aðgengileg öllum félagsmönnum á vinnumarkaðsvef SA .

Samtök atvinnulífsins