11. nóvember 2026

Tökum höndum saman gegn einelti á vinnustöðum

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Tökum höndum saman gegn einelti á vinnustöðum

Samtök atvinnulífsins hafa, ásamt öðrum aðilum vinnumarkaðarins, Jafnréttisstofu og Landlæknisembættinu undir forystu Vinnueftirlitsins, unnið að gerð fræðslu- og stoðefnis til að styðja vinnustaði í forvörnum og viðbrögðum gegn einelti, áreitni og ofbeldi. Þar á meðal eru myndbönd og hagnýtar leiðbeiningar fyrir stjórnendur og starfsfólk. Samstarfið endurspeglar sameiginlega hagsmuni atvinnurekenda og launafólks af öruggu og heilbrigðu vinnuumhverfi.

Í tilefni dags gegn einelti þann 8. nóvember sl. var birt nýtt fræðslumyndband gegn einelti á heimasíðu Vinnueftirlitsins. Í myndbandinu er fjallað um hvað einelti á vinnustað er og hvernig það getur birst með ólíkum hætti í vinnuumhverfinu. Fjallað er um hvernig einelti getur átt rætur í skipulagi, stjórnun og samskiptum og hvað vinnustaðir geta gert til að draga úr líkum á slíkri hegðun. Á heimasíðunni er einnig að finna stoðefni t.d. gátlista um hvernig fyrirbyggja megi einelti og hvernig heilbrigð vinnustaðamenning sé besta forvörnin.

Samtök atvinnulífsins hvetja vinnustaði til að nýta sér efnið t.d. á starfsmannafundum, í stjórnendafræðslu eða við móttöku nýs starfsfólks. Hvernig viljum við hafa samskiptin? Hvaða hegðun sættum við okkur við? Og hvernig er best að bregðast við? Atvinnurekendur bera ábyrgð á að skapa öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi. Hins vegar berum við öll ábyrgð á heilbrigðri vinnustaðamenningu.

Samtök atvinnulífsins