1 MIN
Sækjum fram: Upptaka frá Ársfundi atvinnulífsins
Samkeppnishæfni Íslands og umbætur á vinnumarkaði voru í brennidepli á ársfundi atvinnulífsins sem fram fór í gær, 1. október, undir yfirskriftinni „Sækjum fram“. Hér að neðan má horfa á upptöku af fundinum í heild.
Á fundinum komu saman leiðtogar úr atvinnulífi og stjórnmálum til að ræða hvernig skapa megi skilyrði fyrir öflugra atvinnulífi og bættum lífskjörum. Í ávörpum og pallborðsumræðum var fjallað um samkeppnishæfni, fjárfestingu og þær breytingar sem þarf til að íslenskt efnahagslíf geti sótt fram. Sérstök áhersla var lögð á vinnumarkaðslíkanið og mikilvægi trausts og skýrrar umgjarðar um kjarasamninga.