02. október 2026

Rannveig Rist sæmd Gullmerki Samtaka atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Rannveig Rist sæmd Gullmerki Samtaka atvinnulífsins

Rannveig Rist var sæmd fyrsta gullmerki Samtaka atvinnulífsins á ársfundi atvinnulífsins 1. október fyrir einstakt framlag til íslensks atvinnulífs og samtakanna. Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, afhenti henni merkið.

Í ávarpi sínu sagði Jón Ólafur að Rannveig hefði sett sterkan svip á íslenskt atvinnulíf um áratugaskeið. Hún hefði leitt eitt stærsta iðnfyrirtæki landsins í gegnum miklar breytingar og krefjandi tíma.

„Hún hefur verið óþreytandi talsmaður menntunar, þekkingar og ábyrgðar í atvinnulífinu og rutt konum braut inn á svið þar sem þær höfðu áður verið fáar,“ sagði Jón Ólafur.

Hann þakkaði jafnframt framlag Rannveigar í stjórn og framkvæmdastjórn SA, þar sem reynsla hennar, festa og skýr sýn á langtímahagsmuni atvinnulífsins hefðu verið samtökunum mikilvæg.

„Það er mér mikill heiður að afhenda Rannveigu Rist fyrsta gullmerki Samtaka atvinnulífsins fyrir einstakt framlag til íslensks atvinnulífs og Samtaka atvinnulífsins.“

Rannveig flutti einnig ávarp á ársfundinum. Hér að neðan má horfa á ávarpið í heild eða lesa.

Gullmerkið gerði Ólafur Stefánsson, gullsmiður.

Ávarp Rannveigar Rist:

Kæru félagar og vinir.

Þegar ég var árið 1996 kynnt fyrir stjórnendum Alusuisse í Sviss sem næsti forstjóri álversins í Straumsvík var það gert nokkurn veginn með þessum orðum:

„Hér er Rannveig Rist. Hún er að taka við verstu fjárfestingu okkar í erfiðasta landi sem við höfum starfað í.“

Þetta var kannski ekki hefðbundin leið til að bjóða nýjan forstjóra velkominn. En lýsingin var ekki gripin úr lausu lofti. Álverið sem erlendi fjárfestirinn Alusuisse byggði, hafði átt í rekstrarerfiðleikum. Starfsumhverfið var óstöðugt, pólitískar forsendur, gátu breyst hratt og samskipti við stjórnvöld og stjórnsýslu voru erfið. Og nánast allt logaði í vinnudeilum.

Þegar ég tók við var framkvæmdastjórn fyrirtækisins föst í endalausum kjaraviðræðum. Mikill tími og orka stjórnenda fór í að takast á við átök í stað þess að reka og þróa fyrirtækið. Ég ákvað að ábyrgðin á kjaraviðræðunum yrði á höndum eins til tveggja stjórnanda svo aðrir stjórnendur gætu einbeitt sér að rekstrinum, framleiðslunni og framtíð fyrirtækisins.

En það var aðeins fyrsta skrefið.

Vandinn var ekki bara hver sæti við samningaborðið. Vandinn var skortur á trausti, þekkingu og sameiginlegum skilningi á því hvað þyrfti til að fyrirtækið gæti staðið undir störfunum og laununum til framtíðar. Við þurftum að horfast í augu við stöðuna eins og hún var.

Ekki eins og við vildum að hún væri.

Það er einn mikilvægasti lærdómurinn sem ég hef dregið af tæplega þrjátíu árum í forstjórastarfi: Árangur byggist á staðreyndum, ekki óskhyggju.

Stjórnendur verða að hafa hugrekki til að segja hlutina eins og þeir eru. Líka þegar staðreyndirnar eru óþægilegar. Líka þegar auðveldara væri að bíða, horfa undan og vona að vandinn leystist af sjálfu sér. Það sama á við um fyrirtæki, stjórnvöld og þjóðir.

Við Íslendingar höfum mjög ákveðna sjálfsmynd. Við teljum okkur kvik, friðsæl, skapandi, sjálfstæð og fljót að bregðast við. En sjálfsmynd er ekki það sama og raunveruleiki.

Við segjum að við séum kvik. Samt höfum við opinbera ákvarðanatöku þar sem ferlar geta tekið mörg ár og lögbundnir frestir virðast stundum aðeins vera lausleg viðmið. Fyrirtæki geta beðið mánuðum eða árum saman eftir svörum. Fjárfestar vita ekki hvenær ákvörðun fæst eða hvort forsendurnar verði enn þær sömu þegar hún loks liggur fyrir.

Það er ekki kvikt samfélag.

Við segjum að Ísland sé friðsælt og öruggt samfélag. Á sama tíma þarf að stækka Kvennaathvarfið.

Falleg sjálfsmynd leysir okkur ekki undan því að horfast í augu við staðreyndir.

Við segjumst líka vera frumleg og óhrædd við að fara eigin leiðir. Samt eigum við það til að hlaupa öll í sömu átt, á eftir næsta manni og næsta skammtíma tækifæri.

Einu sinni átti hvert byggðarlag helst að fá sitt refabú. Þegar álverið í Straumsvík hafði sýnt að orkusækinn iðnaður gæti skapað verðmæti vildu um tíma nær allir hreppar fá sitt eigið álver. Nú virðist stundum sem gagnaver séu eina svarið við því hvernig nýta eigi orkuna og skapa störf.

Refabú, álver og gagnaver eiga öll rétt á sér. En atvinnustefna verður ekki til með því að elta síðustu hugmynd sem vakti athygli eða skilaði skjótum ávinningi. Hún verður til með því að meta staðreyndir, bera saman valkosti og byggja markvisst upp fjölbreytt atvinnulíf til langs tíma.

Við þurfum að spyrja:

Hvaða starfsemi skapar mest verðmæti fyrir samfélagið?

Hvaða þekking verður eftir í landinu?

Hvaða fyrirtæki geta vaxið og staðist alþjóðlega samkeppni?

Og hvað viljum við sjá hafa byggst upp eftir tíu, tuttugu eða jafnvel fimmtíu ár?

Samkeppnishæfni verður ekki byggð upp í einu fjárlagafrumvarpi, einu kjörtímabili eða einni kjarasamningslotu. Hún ræðst af orku, innviðum, menntun og regluverki. En ekki síður af því hvort við getum tekið ákvarðanir og staðið við þær.

Lítil ný erlend fjárfesting hefur verið hér á landi. Þegar ég leita að síðustu stóru, nýju erlendu iðnaðarfjárfestingunni verður mér hugsað til álvers Alcoa á Reyðarfirði. Frá þeirri ákvörðun eru liðnir meira en tveir áratugir.

Þegar alvöru fjárfestar skoða Ísland láta þeir sér ekki nægja opinberar stefnur og glærukynningar. Þeir hringja. Og hvert hringja þeir? Þeir hringja í fólk sem hefur byggt upp og rekið fyrirtæki hér. Þeir hringja í þá sem hafa reynslu af íslenskri stjórnsýslu, leyfisferlum, skattkerfinu og samskiptum við stjórnvöld. Þeir vilja vita hvernig það sé í raun að fjárfesta á Íslandi.

Og hvað segjum við þeim?

Getum við sagt að stjórnvöld líti á atvinnulífið sem samstarfsaðila í verðmætasköpun?

Getum við sagt að leikreglurnar séu skýrar og stöðugar, að lögbundnir frestir séu virtir og skattalegar forsendur fyrirsjáanlegar?

Stundum getum við það.

En ekki nógu oft.

Orðspor fjárfestingar lands verður ekki til í auglýsingaherferð. Það verður til í reynslu þeirra sem hafa fjárfest þar áður. Eitt símtal við reyndan stjórnanda eða erlendan fjárfesti getur vegið þyngra en tugir glærukynninga.

Ef við viljum laða hingað öflug fyrirtæki og langtímafjármagn verðum við að geta sagt betri sögu um íslenskt fjárfestingarumhverfi. Fyrst verðum við að skapa þá sögu í raunveruleikanum.

Erlend fjárfesting færir okkur ekki aðeins fjármagn. Hún getur fært okkur þekkingu, tækni, alþjóðleg tengsl og aðgang að mörkuðum. Um leið verðum við að spyrja hvers vegna okkur tekst ekki betur að byggja upp íslensk fyrirtæki með höfuðstöðvar hér heima. Hvers vegna seljum við fyrirtæki úr landi sem gætu orðið öflug alþjóðleg fyrirtæki með ákvarðanatöku, rannsóknir, þróun og þekkingarstörf á Íslandi?

Það er gott þegar frumkvöðlar byggja upp verðmæt fyrirtæki og fá gott verð fyrir þau. En það skiptir líka máli hvar næsta kynslóð stjórnenda verður til, hvar þróunarstarfið fer fram og hvar ákvarðanir um framtíð fyrirtækjanna eru teknar.

Við eigum að sækjast eftir hvoru tveggja: Meiri erlendri fjárfestingu inn í landið og fleiri öflugum fyrirtækjum með rætur og höfuðstöðvar á Íslandi.

Hér er ábyrgð stjórnenda í atvinnulífinu mikil.

Icelandair er hér gott dæmi. Við erum eyþjóð og samgöngur eru lykilatriði i samkeppnishæfni landsins. Ég tel mikla farsæld hafa falist í því að hér starfi flugfélag með heimamarkað sem hluta af innviðum félagsins og mikilvægast fyrir samkeppnishæfni Íslands er að Ísland er tengipunkturinn.

Fyrir eyþjóð eru samgöngur hluti af efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar, En rekstrarskilyrði þurfa að vera raunhæf og því máli koma margir, eigendur, stjórnendur, starfsmenn og stjórnvöld. Við getum ekki í sömu andrá sagt að Icelandair að sé mikilvægt fyrir efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar og hagað okkur eins og afkoma félagsins komi okkur ekki við. Ef við viljum íslenskt flugfélag verðum við líka að skapa því skilyrði til að vera íslenskt flugfélag.

Kæru félagar

Ábyrgð stjórnenda í atvinnulífinu er mikil. Hlutverk okkar er að reka fyrirtæki vel og tryggja fjárhagslega sjálfbærni. Án arðsemi verður engin fjárfesting, engin nýsköpun og til lengdar engin störf. En ábyrgðin nær lengra.

Atvinnulífið getur ekki ætlast til fyrirsjáanleika, ábyrgðar og langtímahugsunar af stjórnvöldum án þess að gera sömu kröfur til sjálfs sín. Við berum ábyrgð á því hvernig fyrirtækin fara með starfsfólk, þekkingu, auðlindir og traust samfélagsins. Við verðum að horfa lengra en til næsta ársfjórðungs og spyrja hvað við séum að byggja upp.

Menntun hefur þess vegna alltaf verið mér mikið hjartans mál. Í Straumsvík lögðum við áherslu á að starfsfólk skildi ekki aðeins hvað það ætti að gera, heldur hvers vegna. Þess vegna byggðum við meðal annars upp Stóriðjuskólann. Markmiðið var ekki bara að kenna ákveðin handtök. Markmiðið var að auka þekkingu, sjálfstæði og frumkvæði.

Ég kynntist dæmi frá erlendu álveri þar sem mistök höfðu verið gerð við gerð verkferils. Gallinn var augljós þeim sem þekkti framleiðsluna. En starfsfólkið fylgdi ferlinum í blindni og afleiðingin varð framleiðslu tjón.

Ég ákvað síðar að gera litla tilraun í Straumsvík. Við teiknuðum upp verkferli fyrir vinnu sem átti að fara fram um helgi. Í ferlinu var galli. Síðan fylgdist ég með framvindunni í tölvunni heima. Starfsfólkið kom fljótt auga á að áætlunin gat ekki staðist. Það staldraði við, leiðrétti ferlið og vann verkið rétt. Það gat gert það vegna þess að það bjó yfir þekkingu.

Þekking gerir fólk ekki aðeins hæfara til að fylgja fyrirmælum. Hún gerir því kleift að efast um þau, bæta þau og taka ábyrgð. Þegar fólk skilur tilgang starfsins eykst umhyggjan fyrir því. Frumkvæði verður meira, ákvarðanir verða betri og tengslin við vinnustaðinn styrkjast.

Aukin menntun hjálpaði okkur líka að opna fleiri störf og fleiri hluta framleiðslunnar fyrir konum. Atvinnuþátttaka kvenna hefur tvímælalaust skipt sköpum í samkeppnishæfni Íslands. Þekking brýtur niður múra sem venjur hafa reist.

Þess vegna eru niðurstöður PISA alvarlegt umhugsunarefni fyrir atvinnulífið. Fjögur af hverjum tíu íslenskum ungmennum ná ekki grunnfærni í lestri. Hlutfall nemenda á efstu hæfnisstigum er jafnframt lágt. Þetta getur haft bein áhrif á framtíðarhagvöxt, framleiðni og getu okkar til nýsköpunar.

Við þurfum að hækka gólfið og tryggja að miklu fleiri börn nái grunnfærni. En við þurfum líka að hækka þakið og gefa þeim sem geta farið lengra raunverulegt tækifæri til þess.

Við eigum samt ekki að byrja umræðuna á því að telja upp allt sem er að. Við eigum að byrja á styrkleikunum og byggja á þeim. Íslensk ungmenni hafa sterka trú á eigin sköpunargetu. Þau sjá tækifæri til sköpunar í náminu og telja að hægt sé að þjálfa sköpunargáfuna. Þau standa hlutfallslega betur í verkefnum sem kalla á frumlegar hugmyndir og vinnu með texta og frásagnir. Við sjáum líka seiglu, sjálfstæði og vilja til að leita eigin lausna.

Verkefnið er ekki að laga börnin okkar. Verkefnið er að byggja menntakerfi sem nær því besta fram í þeim og tryggir þeim um leið þá grunnfærni sem þau þurfa til að fóta sig í sífellt flóknari heimi.

Einn styrkur íslensks atvinnulífs hefur verið fjölbreyttur menntunarlegur bakgrunnur. Íslendingar hafa farið í framhaldsnám víða um heim. Vestur um haf, austur um haf og til ólíkra landa í Evrópu. Þeir koma heim úr mismunandi skólum, með ólíkar aðferðir, reynslu og hugmyndir.

Ef allir stjórnendur fyrirtækis koma úr sama skóla, hafa lesið sömu bækurnar og lært sömu aðferðina er hætt við að þeir sjái allir sömu lausnina, missi af sömu hættunum og missi af tækifærum. Fjölbreytt þekking skapar uppbyggilegan ágreining. Og uppbyggilegur ágreiningur skilar betri ákvörðunum.

Við megum heldur ekki vanmeta íslensku sumarvinnuna. Sú hefð að ungt fólk vinni á sumrin hefur gefið kynslóðum Íslendinga innsýn í ólíkar hliðar samfélagsins og kennt þeim að vinna með fólki með annan bakgrunn og aðra reynslu. Bóklegar kenningar eru nauðsynlegar. En þær verða sterkari þegar þær mæta raunveruleikanum, samstarfsfólkinu, viðskiptavininum og verkefninu sem verður að klára fyrir lok dags. Við þurfum því að varðveita sumarvinnuna, efla starfsmenntun og iðnmenntun og byggja sterkari brýr milli skóla og atvinnulífs.

Góðir fundargestir.

Álverið í Straumsvík var kallað versta fjárfesting Alusuisse í erfiðasta landi sem fyrirtækið starfaði í. En það var ekki náttúrulögmál að svo yrði áfram. Með sameiginlegu átaki starfsfólksins, aukinni þekkingu og markvissum umbótum breyttist staðan. Álverið varð fyrirtæki sem stendur sterkt í alþjóðlegum samanburði. Starfsánægja er mikil, framleiðni hefur aukist og árangur í öryggismálum og umhverfismálum gjörbreyst.

Það gerðist ekki vegna einnar stórkostlegar hugmyndar. Það gerðist vegna þúsunda ákvarðana sem teknar voru af fólki sem þekkti verkefnið, skildi tilganginn og bar ábyrgð á árangrinum.

Þar liggja tækifæri Íslands.

Við eigum orku, auðlindir, þekkingu og sterka innviði. Við erum lítil þjóð og ættum að geta talað saman, prófað nýjar leiðir og breytt hlutum hratt. En aðeins ef við gerum það í raun. Ekki bara í sögunni sem við segjum um okkur sjálf.

Við þurfum að horfast í augu við veikleikana án þess að missa sjónar á styrkleikunum.

Við þurfum að taka ákvarðanir hraðar, hugsa lengra og skapa trúverðugt umhverfi fyrir fjárfestingu.

Stjórnvöld bera þar mikla ábyrgð.

En atvinnulífið ber hana líka.

Ábyrgð okkar er ekki aðeins að nýta tækifæri dagsins í dag. Hún er að byggja upp getu samfélagsins til að skapa verðmæti á morgun. Umfram allt þurfum við að fjárfesta í fólki.

Orkan og auðlindirnar skapa möguleikana. En það er fólkið sem skapar verðmætin.

Ég er bjartsýn á framtíð Íslands vegna þess að ég hef séð hvað gerist þegar fólki er treyst, það öðlast þekkingu og skilur tilganginn með því sem það gerir. Þá fylgir það ekki bara ferlinu.

Það kemur auga á gallann. Það tekur ábyrgð. Það lagar það sem þarf að laga. Og það finnur betri leið áfram.

Þannig byggjum við upp atvinnulíf til lengri tíma.

Þannig byggjum við upp samfélag.

Þannig sækjum við fram.

Samtök atvinnulífsins