04. mars 2025

Öryggisverðir fengu Fagbréf atvinnulífsins í fyrsta sinn

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Öryggisverðir fengu Fagbréf atvinnulífsins í fyrsta sinn

Þann 20 febrúar sl. fór fram afhending Fagbréfa atvinnulífsins til öryggisvarða hjá Securitas. Þetta er í fyrsta sinn sem starf öryggisvarða fer í gegnum hæfnigreingar sem leiðir til fagbréfa en fagbréf veita staðfestingu á þeirri færni og þekkingu sem öryggisverðir búa yfir.

Hæfniviðmið sem nýtt voru í matsferlinu byggjast á hæfnigreiningu og starfaprófíl frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) sem þjálfaði jafnframt matsaðila úr fyrirtækinu. Verkefnastýring heildarferlisins með þátttakendum, í samstarfi við Securitas, var í umsjón símenntunarmiðstöðvarinnar Mímis.

Eiríkur Ronald Jósepsson, sérfræðingur og annar matsaðila í ferlinu opnaði samkomuna og lagði áherslu á ávinninginn af ferlinu með auknum sýnileika á færni öflugs starfsfólks hjá Securitas. Hann sagði jafnframt að raunfærnimatið sem leiðir til fagbréfs undirstriki mikilvægi starfa öryggisvarða og sé ekki síður mikilvægur áfangi fyrir starfsgreinina sem heild.

Maj-Britt H. Briem, lögmaður á vinnumarkaðssviði hjá Samtökum atvinnulífsins, ávarpaði samkomuna einnig og fór yfir sýn SA á að Fagbréf atvinnulífsins verði fest í sessi. Í því felist ávinningur bæði fyrir starfsfólk og fyrirtæki. Mikilvægt sé að auka sýnileika á hæfni starfsfólks með hliðsjón af endurmenntun og starfsþróun - starfsfólki og fyrirtæki til heilla.

Kristín Erla Þráinsdóttir, verkefnastjóri hjá Mími, og Baldur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri gæslusviðs Securitas, afhentu þátttakendum fagbréfin. Athöfnin var hátíðleg og boðið upp á veitingar í lokin þar sem fólk gat notið samverunnar í húsakynnum Securitas.

Hægt er að sjá nánari upplýsingar um Fagbréf atvinnulífsins á vef FA: www.frae.is

Samtök atvinnulífsins