02. október 2026

Örorkubótasjóður kynntur á 90 ára afmælisviðburði Almannatrygginga

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Örorkubótasjóður kynntur á 90 ára afmælisviðburði Almannatrygginga

Til framtíðar er verkefnið að tryggja fólki eins gott tækifæri og unnt er til að endurheimta starfsorkuna, þar sem þess er kostur. Það er hagur einstaklingsins, atvinnulífsins og samfélagsins alls.

Þann 30. september flutti Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, erindi á 90 ára afmælisráðstefnu almannatrygginga.

Erindið fjallaði um þróun almannatryggingakerfisins og þær áskoranir sem nú blasa við þegar kemur að örorku, lífeyrisréttindum og tengslum kerfisins við vinnumarkað og atvinnulíf. Þar var meðal annars fjallað um mikilvægi þess að kerfið styðji betur við endurkomu fólks til vinnu, jafni réttindi milli starfsstétta og skapi skýrari og sjálfbærari umgjörð fyrir einstaklinga, atvinnulíf og hið opinbera.

Í erindinu var kynnt tillaga að heildstæðri lausn við þessum áskorunum: Örorkubótasjóður.

Undanfarin ár hefur örorkubyrði verið mjög mismunandi milli lífeyrissjóða. Þar sem örorku- og ellilífeyrisréttindi tengjast getur það leitt til mismunar á ávinnslu ellilífeyris milli starfsstétta, þrátt fyrir sambærileg iðgjöld.

Jafnframt hefur fjármögnun jöfnunar milli sjóða verið háð árlegum ákvörðunum við afgreiðslu fjárlaga, sem hefur skapað óvissu og dregið úr fyrirsjáanleika til lengri tíma.

Kerfið er einnig flókið vegna samspils almannatrygginga og lífeyrissjóða. Gagnkvæm tekjuviðmið geta haft áhrif á greiðslur úr báðum kerfum og gert réttindi einstaklinga óskýrari en æskilegt er.

Á sama tíma hefur kostnaður vegna veikinda, endurhæfingar og örorku aukist hratt. Því er brýnt að horfa ekki aðeins til bótagreiðslna heldur einnig til þess hvernig kerfið getur stutt betur við endurhæfingu, atvinnuþátttöku og endurkomu fólks til vinnu.

Heildstæð lausn í stað fleiri plástra

Hugmyndin að Örorkubótasjóði byggir á því að sameina ábyrgð sem í dag er dreifð á milli almannatrygginga og lífeyrissjóða.

Gert er ráð fyrir að stofnaður verði sameiginlegur sjóður fyrir fólk sem missir starfsorku eftir að hafa áunnið sér réttindi á vinnumarkaði. Sjóðurinn myndi taka við örorkuskuldbindingum lífeyrissjóða og greiðslum almannatrygginga vegna örorku og endurhæfingar fyrir þann hóp.

Sjóðurinn yrði á forræði aðila vinnumarkaðarins og fjármagnaður með sérstöku iðgjaldi. Á móti myndu iðgjöld til lífeyrissjóða og tryggingagjald lækka. Markmiðið er því ekki að auka heildarkostnað örorkutrygginga, heldur að færa ábyrgð og fjármögnun til með skýrari og fyrirsjáanlegri hætti.

Greiðslur úr sjóðnum yrðu tvíþættar. Annars vegar yrði tryggð viðunandi grunnframfærsla og hins vegar yrði tekið mið af fyrri tekjum og greiddum iðgjöldum.

Jafnari réttindi og einfaldara kerfi

Með sameiginlegum Örorkubótasjóði væri hægt að jafna örorkubyrði milli starfsstétta og draga þannig úr þeim mun sem nú getur myndast á ellilífeyrisréttindum.

Sjálfstæð fjármögnun sjóðsins myndi jafnframt koma í stað árlegs jöfnunarframlags og skapa meiri fyrirsjáanleika fyrir bæði lífeyriskerfið og hið opinbera.

Með því að sameina greiðslur á eina hendi yrði kerfið einnig einfaldara og gagnsærra fyrir einstaklinga og dregið úr þeirri flóknu víxlverkun sem nú er á milli almannatrygginga og lífeyrissjóða.

Sterkari tenging við vinnumarkaðinn

Mikilvægur þáttur tillögunnar er aukin áhersla á að fólk haldi tengslum við vinnumarkaðinn og fái stuðning fyrr í veikindaferlinu.

Með skýrari ábyrgð á greiðslum skapast betri forsendur til að fjárfesta í árangursríkri endurhæfingu og grípa fyrr inn þegar fólk glímir við veikindi. Markmiðið er að auka líkur á að einstaklingar geti endurheimt starfsorku og snúið aftur til vinnu.

Slík nálgun skiptir ekki aðeins máli fyrir einstaklingana sjálfa heldur einnig fyrir atvinnulífið og samfélagið í heild. Aukin atvinnuþátttaka, betri nýting mannauðs og skýrari hvatar innan kerfisins geta styrkt vinnumarkaðinn til lengri tíma og dregið úr kostnaði vegna langvarandi fjarveru frá vinnu.

Tillagan að Örorkubótasjóði er hugsuð sem ein heild þar sem réttindi, fjármögnun, ábyrgð og hvatar haldast í hendur. Markmiðið er að byggja upp einfaldara, sanngjarnara og sjálfbærara kerfi sem styður betur við einstaklinga og styrkir tengsl almannatryggingakerfisins við vinnumarkað og atvinnulíf.

Samtök atvinnulífsins