1 MIN
Kjarasamningar halda – áhersla á lægri verðbólgu og vexti
Samtök atvinnulífsins hafa náð samkomulagi við VR, LÍV, Rafiðnaðarsamband Íslands vegna aðildarfélaga, VM og Matvís um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Samningarnir halda því gildi sínu. Áður hafði náðst samkomulag við SGS, Eflingu og Samiðn um áframhaldandi gildi kjarasamninga þeirra.
Með þessum niðurstöðum hefur dregið úr óvissu á vinnumarkaði og grundvöllur stöðugleika verið styrktur.
„Mikilvægasta verkefnið er að ná niður verðbólgu og vöxtum. Áhersla SA hefur allan tímann verið skýr: Fyrirtækin geta ekki borið frekari launahækkanir umfram það sem þegar hefur verið samið um, til viðbótar við boðaðar skattahækkanir. Allir aðilar hafa sýnt ábyrgð með þessari niðurstöðu og við erum ánægð með að kjarasamningarnir haldi. Það styrkir grundvöll lægri verðbólgu og vaxta, í þágu fyrirtækja, heimila og samfélagsins alls,“ segir Bjarni Benediktsso,n framkvæmdastjóri SA.
Nýja samkomulagið heimilar að stytta samningstímann um allt að tvo mánuði haustið 2027 ef tiltekin verðbólguviðmið standast ekki, að teknu tilliti til undirliggjandi þátta verðbólgunnar. Jafnframt skuldbinda aðilar þess sig til reglubundins samtals um efnahagsmál og undirbúning næstu kjaraviðræðna.
SA hafa einnig beint því til fyrirtækja að halda aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt út gildistíma samninganna. Sameiginlegt markmið aðila er að draga úr verðbólgu, bæta hag launafólks og styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins.