Fréttir - 

07. október 2024

Jafnlaunavottun átti aldrei að vera skylda

Heiðrún Björk Gísladóttir

1 MIN

Jafnlaunavottun átti aldrei að vera skylda

Lögum um jafnlaunavottun var ætlað að stuðla að jafnrétti á vinnumarkaði. Samtök atvinnulífsins komu að mótun jafnlaunastaðalsins á sínum tíma en voru hins vegar ekki fylgjandi lögfestingu hans. Samtökin gerðu margvíslegar athugasemdir við lagafrumvarpið á sínum tíma og hafa varnaðarorðin raungerst.

Árið 2023 kom út rannsókn á vegum Háskóla Íslands um áhrif jafnlaunavottunar á launamun kynjanna. Samkvæmt niðurstöðum hennar er ekki að sjá að innleiðing jafnlaunastaðals hafi haft bein áhrif á launamun kynjanna. Lögfesting staðalsins hefur því ekki náð þeim markmiðum sem að var stefnt, þ.e. hann hefur haft lítil sem engin áhrif á launamun kynjanna.

Nú hefur málflutningi Samtaka atvinnulífsins borist liðstyrkur úr átt sem einhverjum kynni að þykja óvænt. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, sagði í samtali við Morgunblaðið á dögunum að jafnlaunavottun hafi ekki aðeins verið gagnslaus fyrir verka- og láglaunakonur, heldur hafi hún veikt möguleika þeirra á að ná árangri í kjarabaráttu sinni. Þá segir hún að vandinn sé ekki innan einstaka stofnana eða fyrirtækja. Þar hittir hún naglann á höfuðið, vandinn stafar af kynskiptum vinnumarkaði. Hann verður ekki leystur með íþyngjandi kröfum, kostnaði og gríðarlegu magni upplýsinga sem skila þarf ár hvert til þess að hljóta viðhaldsvottanir.

Líkt og áður segir komu Samtök atvinnulífsins að mótun jafnlaunastaðalsins á sínum tíma. Staðlinum var aldrei ætlað að verða að lögum.

Þá hefur Diljá Mist Einarsdóttir lagt fram frumvarp um endurskoðun jafnlaunavottunar í annað sinn. Frumvarpið mælist til þess að jafnlaunavottun verði gerð valkvæð eins og hún var upphaflega hugsuð. Mikilvægt er að frumvarpið fái framgang á Alþingi svo um það megi eiga málefnalega umræðu í nefndum þingsins og við hagsmunaaðila, s.s. aðila vinnumarkaðarins en þar virðist nú vera að myndast aukin samstaða um ógagnsemi skyldubundinnar jafnlaunavottunar.

Líkt og áður segir komu Samtök atvinnulífsins að mótun jafnlaunastaðalsins á sínum tíma. Staðlinum var aldrei ætlað að verða að lögum. Hann var gerður til að vera valkvæður og hafa samtökin kallað eftir því að afnumin verði lagaskylda til að uppfylla kvaðir hans.

Í sjálfbærniregluverki ESB, sem stjórnkerfið innleiðir nú af miklum móð, leynast mörg tækifæri í bland við áskoranir. Bæði í regluverki um ófjárhagslega upplýsingagjöf (CSRD) og í launagagnsæistilskipun ESB er að finna kröfur um upplýsingar frá fyrirtækjum sem jafna má við þær sem eru í jafnlaunastaðlinum. Nema að ætlun stjórnvalda sé að margregluvæða atvinnulífið er nauðsynlegt að huga að endurskoðun reglna um jafnlaunavottun. Við eigum öll að geta sammælst um það.

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu þann 6. október.

Heiðrún Björk Gísladóttir

Lögmaður á málefnasviði SA