27. október 2026

Icelandair er Umhverfisfyrirtæki ársins 2026

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Icelandair er Umhverfisfyrirtæki ársins 2026

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru veitt við hátíðlega athöfn á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem haldinn var á Hótel Reykjavík Grand í dag.

Icelandair hlýtur nú nafnbótina í fyrsta sinn en þetta er í ellefta sinn sem SA og aðildarfélög standa að Umhverfisdegi atvinnulífsins. Það var Guðrún Helga Heiðarsdóttir, sjálfbærnistjóri hjá Icelandair, sem veitti verðlaununum viðtöku fyrir hönd fyrirtækisins.

Í ár var sérstök áhersla lögð á ábyrga ákvarðanatöku og hvernig umhverfissjónarmið hafa áhrif á stefnu, fjárfestingar og daglegan rekstur fyrirtækja. Árangur í umhverfismálum krefst þátttöku fyrirtækja úr öllum atvinnugreinum, ekki síst þeim þar sem umhverfisáhrifin eru mikil. Með verðlaununum vilja Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra vekja athygli á fyrirtækjum sem sýna í verki hvernig ábyrg ákvarðanataka, fjárfestingar og stöðugar umbætur geta skilað árangri í umhverfismálum.

Fjölmargar metnaðarfullar tilnefningar bárust og það var því ekki auðvelt verkefni fyrir dómnefndina að velja úr þeim. Þrjú fyrirtæki sköruðu sérstaklega fram úr tilnefningum að þessu sinni en auk Icelandair voru Elkem Ísland og Ístak heiðruð fyrir sitt starf. Þessi þrjú fyrirtæki starfa í ólíkum atvinnugreinum en eiga það sameiginlegt að hafa sett sér skýr markmið og gripið til markvissra aðgerða til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar.

Dómnefnd Umhverfisverðlauna atvinnulífsins skipuðu Jóna Bjarnadóttir frá Landsvirkjun, Sigríður Ósk Bjarnadóttir frá BM Vallá og María Rúnarsdóttir frá Heimum.


Úr rökstuðningi sjálfstæðrar dómnefndar kemur m.a. fram:

Icelandair

Icelandair hlýtur Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2026 sem Umhverfisfyrirtæki ársins fyrir markvisst umhverfisstarf, ábyrga ákvarðanatöku og mælanlegan árangur við að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar.

Icelandair hefur sýnt hvernig umhverfissjónarmið geta haft raunveruleg áhrif á mikilvægar ákvarðanir í kjarnastarfsemi félagsins. Með því leiðir fyrirtækið með góðu fordæmi og hvatningu til annarra í atvinnugreinum þar sem umhverfisáhrif eru mikil og áskoranir flóknar, því í umhverfismálunum leynast víða tækifæri til að samhliða bæta rekstur og draga úr áhrifum á umhverfið.

Félagið hefur byggt upp öflugt og skipulagt umhverfisstarf og hlotið IEnvA-umhverfisvottun á hæsta þrepi fyrir alla starfsemi sína. Sjálfbærni er hluti af stefnu félagsins og áhersla lögð á ábyrga nýtingu auðlinda, minni úrgang og stöðugar umbætur.

Icelandair hefur jafnframt sett sér skýr loftslagsmarkmið og leggur áherslu á gagnsæi með reglulegri og opinberri upplýsingagjöf um umhverfisáhrif, markmið og þann árangur sem náðst hefur.

Umhverfisábyrgð félagsins birtist skýrt í umfangsmikilli endurnýjun flugflotans og markvissum umbótum í rekstri. Fjárfestingar í sparneytnari flugvélum hafa stuðlað að bættri eldsneytisnýtingu og minni losun á hvern tonnkílómetra. Frá árinu 2019 hefur losun á hvern tonnkílómetra dregist saman um 22% og heildarlosun um 10%, þrátt fyrir að farþegum hafi fjölgað um 15% á sama tímabili.

Umhverfissjónarmið hafa jafnframt áhrif á ákvarðanir um áfangastaði, samstarfsaðila og birgja. Félagið hefur greint mikilvæga umhverfis- og loftslagsáhættu og tekið mið af henni í áhættustýringu og stefnumótun. Þannig er umhverfisábyrgð ekki aðeins hluti af yfirlýstum markmiðum heldur þáttur í ákvörðunum sem móta rekstur félagsins.

Icelandair hefur sýnt í verki hvernig ábyrg ákvarðanataka, markvissar fjárfestingar og stöðugar umbætur geta skilað mælanlegum umhverfisárangri í atvinnugrein sem stendur frammi fyrir verulegum loftslagsáskorunum. Fyrir þann árangur er Icelandair verðugur handhafi Umhverfisverðlauna atvinnulífsins 2026.

Dómnefnd óskar Icelandair innilega til hamingju með viðurkenninguna.

Elkem Ísland

Elkem Ísland hefur sýnt metnað og ábyrgð í umhverfismálum með áherslu á bætta auðlindanýtingu og nýsköpun.

Fyrirtækið hefur meðal annars unnið markvisst að því að nýta hráefni betur og draga úr sóun með því að nota úrgangstimbur í stað hluta þeirra jarðefnakola sem annars væru notuð við framleiðslu kísiljárns í verksmiðju fyrirtækisins á Grundartanga.

Með skýrum markmiðum og stöðugum umbótum sýnir Elkem hvernig umhverfisábyrgð og nýsköpun geta farið saman í orkusæknum iðnaði.

Ístak

Ístak hefur sýnt metnað og ábyrgð í umhverfismálum með áherslu á orkuskipti og bætta auðlindanýtingu.

Fyrirtækið hefur fjárfest í raforkuinnviðum og tekið í notkun rafknúnar vinnuvélar og búnað til efnisvinnslu í Stapafelli.

Með þessum aðgerðum hefur Ístak sýnt fram á að rafvæðing er raunhæfur kostur í krefjandi námuvinnslu og skapað forsendur fyrir verulegum sparnaði í notkun jarðefnaeldsneytis.

Samtök atvinnulífsins