27. október 2026

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026

Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 var haldinn á Hótel Reykjavik Grand. Upptöku frá sameiginlegri dagskrá má finna hér að ofan.


Umhverfisdagur atvinnulífsins 2026 ber yfirheitið Sérstaða Íslands. Kastljósinu verður beint að sérstöðu Íslands og mikilvægi öflugrar og framsýnnar hagsmunagæslu fyrir íslenskt atvinnulíf með það að markmiði að loftslagsárangur og samkeppnishæfni fari saman.

Dagskrá:
Kristjana Arnarsdóttir fer með fundarstjórn.

Opnunarávarp
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Frá Íslandi til Brussel – sérstaða, hagsmunir og áhrif
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrir samtali.

  • Dr. Gunnar Þór Pétursson, deildarforseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík.  
  • Álfheiður Ágústsdóttir, aðstoðarforstjóri Travel Connect. 
  • Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets. 

Umhverfisfyrirtæki ársins
Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, afhendir verðlaunin. Í ár var sérstök áhersla lögð á ábyrga ákvarðanatöku og hvernig umhverfissjónarmið hafa áhrif á stefnu, fjárfestingar og daglegan rekstur fyrirtækja. Árangur í umhverfismálum krefst þátttöku fyrirtækja úr öllum atvinnugreinum, ekki síst þeim þar sem umhverfisáhrifin eru mikil. Með verðlaununum vilja Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra vekja athygli á fyrirtækjum sem sýna í verki hvernig ábyrg ákvarðanataka, fjárfestingar og stöðugar umbætur geta skilað árangri í umhverfismálum

Dómnefnd hefur valið þrjú fyrirtæki sem sköruðu fram úr meðal þeirra tilnefninga sem bárust í ár:

  • Ístak
  • Icelandair
  • Elkem


    Dagurinn sameiginlegt verkefni SA, SAF, Samorku, SFF, SFS, SI og SVÞ.

Samtök atvinnulífsins