30. október 2026

Hversu oft á að borga fyrir sömu innviðina?

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Hversu oft á að borga fyrir sömu innviðina?

Í samráðsgátt stjórnvalda liggja fyrir drög að nýju náttúru- og innviðagjaldi sem áætlað er að skili ríkissjóði 6–7 ma.kr. á ársgrundvelli. Samtökin eru almennt ekki mótfallin gjaldtöku sem felur í sér að þeir greiði sem nota en benda á að ferðaþjónustan greiðir nú þegar gistinátta- og innviðagjald upp á u.þ.b. 5,5 ma.kr. sem ætlað er að standa undir uppbyggingu, viðhaldi og vernd ferðamannastaða og innviða. Ferðamenn leggja jafnframt verulega fjármuni til ríkissjóðs með virðisaukaskatti og öðrum skatttekjum af neyslu sinni hér á landi, án þess að nýta alla þá almannaþjónustu sem skatttekjunum er ætlað að standa undir. Samtökin telja því ekki rétt að mæta almennum kostnaði ríkisins með sífellt aukinni sértækri skattheimtu á ferðaþjónustu, heldur eigi fyrst að tryggja að núverandi gjöld nýtist í þeim tilgangi sem þeim var ætlað.

Þrátt fyrir það er fyrirhugað að leggja á frekari gjöld til að mæta sama markmiði sem önnur skattheimta byggir nú þegar á, án þess að þeir fjármunir skili sér að fullu í þau verkefni. Rennur skatturinn þannig beint inn í ríkissjóð og mun eflaust líkt og öðrum sértækum sköttum á ferðaþjónustu vera varið í önnur verkefni en þau sem yfirlýst markmið með sköttunum er. Nýjasta dæmið um skattahækkun sem átti að fjármagna tiltekin verkefni er hækkun veiðigjalds á síðasta ári. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu verður hins vegar hátt í 10% raunsamdráttur fjárfestinga í vegakerfinu og verða þær sem hlutfall af landsframleiðslu álíka miklar og að meðaltali árin 2016-2025.

Þá virðast forsendur um tekjur af gjaldinu ekki taka tillit til þess að gjald upp á 4.500 kr. á mann getur í sjálfu sér dregið verulega úr aðsókn. Eitt markmið gjaldsins að hafa áhrif á ferðaval og dreifa ferðamönnum betur um landið. Þá er ekki hægt að byggja tekjuáætlunina á því að aðsókn haldist að mestu óbreytt líkt og þó er gert. Því hærra sem gjaldið er, þeim mun meiri eru líkurnar á að ferðamenn velji aðra áfangastaði og að tekjur ríkissjóðs verði lægri en áætlað er.

Hækkun virðisaukaskatts á baðlón gjörbreytir forsendum uppbyggingar

Uppbygging baðlóna krefst mikilla fjárfestinga og hefur skapað heilsársstörf víða um land. Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts breytir rekstrar- og fjárfestingarforsendum greinarinnar og kann að draga úr fyrirhugaðri uppbyggingu, ekki síst á landsbyggðinni þar sem nær öll baðlón eru staðsett. Það samræmist illa markmiðum stjórnvalda um aukna fjárfestingu, verðmætasköpun og atvinnuuppbyggingu um land allt. Baðlón mynda svokallaða segla sem hvetja ferðamenn til að leggja leið sína utan höfuðborgarsvæðisins, sér í lagi í styttri ferðum þeirra til landsins. Hærri virðisaukaskattur á baðlón er því síst til þess fallin að standa vörð um fjölbreytt störf og atvinnuuppbyggingu utan höfuðborgarsvæðisins.

Stór hluti ferðamanna heimsækir náttúruböð og heilsulindir. Sé litið til svara frá 2021, áður en landamærakönnun Ferðamálastofu var breytt, svöruðu tæplega 12% ferðamanna því til að ferð þeirra í Bláa lónið hafi verið það minnistæðasta úr Íslandsferðinni.[1] Mikilvægi baðlóna í íslenskri ferðaþjónustu er því ótvírætt. Skattahækkunin kemur jafnframt á viðkvæmum tíma fyrir ferðaþjónustuna. Ísland er þegar afar dýr áfangastaður. Hærri álögur bætast við almennt hátt verðlag og sterkt raungengi og munu hafa neikvæð áhrif á eftirspurn, neyslu ferðamanna og samkeppnishæfni greinarinnar.

Greining með þjóðhagslíkani ferðaþjónustunnar sýnir mikilvægi þess að horfa til hegðunaráhrifa. Við víðtækari hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu var metið að aðeins um 60% af tekjuaukningu skilaði sér í ríkissjóð á fyrsta ári og að til lengri tíma gætu heildarskatttekjur orðið minni en án hækkunarinnar. Þótt greiningin taki ekki sérstaklega til baðlóna undirstrikar hún að meta þarf heildaráhrif breytingarinnar.

Gildar ástæður eru fyrir því að flestöll Evrópuríki skattleggja ferðaþjónustu í lægra VSK þrepi en hinu almenna þrepi. Útfluttar vörur bera ekki virðisaukaskatt en líta má á ferðaþjónustu sem útflutta þjónustu, sem þarf að standast alþjóðlega samkeppnishæfni. Nýlegar rannsóknir sýna að jafnvel lítil hækkun VSK þreps ferðaþjónustu geta valdið miklu þjóðhagslegu tapi, enda séu ferðamenn mjög næmir fyrir verðlagningu á áfangastöðum.[2]

Sú skattheimta sem fyrirhugað er að auka á ferðaþjónustu nemur samtals um 11 ma.kr., beint eða óbeint. Til samanburðar nam hagnaður greinarinnar um 20 ma.kr. árið 2024. Svigrúm hennar til að taka á sig frekari álögur er því ekki til staðar í ljósi mikillar alþjóðlegrar samkeppni og hás innlends kostnaðar.

Greinin er hluti af umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til fjárlaga 2027.

Samtök atvinnulífsins