1 MIN
Glutrum ekki niður árangri síðustu ára
Verkefnið áfram að verja kaupmátt heimilanna
Eitt meginverkefni Samtaka atvinnulífsins er gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Líkt og kunnugt er rann Lífskjarasamningurinn, sem undirritaður var árið 2019, út um síðustu mánaðamót. VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og Starfsgreinasambandið hafa ákveðið að vísa kjaraviðræðum við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara en viðræður hafa staðið yfir síðan á haustmánuðum.
Samningsaðilar geta hvenær sem er eftir útgáfu viðræðuáætlunar óskað milligöngu ríkissáttasemjara eða aðstoðar hans og beitir hann sér fyrir því að samningaumleitanir fari fram í samræmi við viðræðuáætlun.
„ Vísun deilunnar til ríkissáttasemjara breytir í sjálfu sér ekki miklu. Verkefnið er áfram hið sama: að ná samningum hratt og örugglega til að verja kaupmátt heimilanna. Þar skiptir mestu máli að skapa skilyrði fyrir lægri verðbólgu og lækkun vaxta. Það eru mjög krefjandi ytri aðstæður og alþjóðahagkerfið er í mikilli vörn og fyrstu merki um kreppu víða farin að láta á sér kræla. Lausnin á þessari deilu felst í því að finna leið sem glutrar ekki niður árangri síðustu ára þar sem kaupmáttur íslensks launafólks hefur vaxið stórkostlega ,“
segir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um þessa framvindu í viðræðum við VR, LÍV og SGS.