19. október 2026

Glufur í stöðugleikareglunni

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Glufur í stöðugleikareglunni

Verðlagsleiðrétting stöðugleikareglu vanmetur raunvöxt ríkisútgjalda

Stöðugleikareglunni er ætlað að setja vexti ríkisútgjalda skorður, en hún nær aðeins til afmarkaðs hluta útgjaldanna. Af 1.705 ma.kr. heildarútgjöldum málefnasviða í fjárlagafrumvarpi ársins 2027 eru 383 ma.kr. (23%) undanskildir útgjaldagrunni reglunnar.

Stöðugleikareglan setur 2% hámark á raunvöxt útgjaldagrunnsins. Við mat á raunvexti eru útgjöld reiknuð með tilliti til þeirrar verð- og launaþróunar sem liggur að baki hverjum útgjaldalið. Aukist útgjöld vegna launahækkana eða hækkunar bóta er sú hækkun því tekin út, að hluta eða öllu leyti, við útreikning á raunvexti skv. reglunni. Mældur raunvöxtur mælir þannig fyrst og fremst breytingar á umfangi útgjaldanna, í formi fjölgunar laun- eða bótaþega, en síður þróun þess kostnaðar sem ríkissjóður stendur í raun frammi fyrir.

Reglan tryggir þess vegna ekki að raunveruleg útgjöld haldist innan áætlunar. Fari þau fram úr birtist það í verri afkomu ríkissjóðs án þess að reglan kalli á sjálfkrafa mótvægisaðgerðir. Í fjárlagafrumvarpinu nema launa- og verðlagsbætur 59,9 ma.kr. Sú hækkun er tekin út við útreikning á raunvexti útgjaldagrunns stöðugleikareglunnar og kemur því ekki fram í mældum útgjaldavexti samkvæmt reglunni.

Seðlabanki Íslands bendir sérstaklega á þennan veikleika reglunnar í umsögn sinni um fjárlagafrumvarpið. Bankinn áætlar að 7,3% hækkun bóta almannatrygginga um áramót auki útgjöld ríkissjóðs um 9 ma.kr. umfram það sem orðið hefði samkvæmt fyrra fyrirkomulagi. Þrátt fyrir þennan viðbótarkostnað hefur breytingin takmörkuð áhrif á mældan raunvöxt útgjalda samkvæmt reglunni vegna þess hvernig bæturnar eru staðvirtar.[1]

Fullt gagnsæi um raunvirðingu útgjalda er forsenda þess að hægt sé að leggja sjálfstætt mat á aðhaldið. Birta þarf með skýrum hætti hvaða útgjöld falla utan reglunnar, hvaða verð- og launaforsendur eru notaðar við raunvirðingu hvers útgjaldaliðar og hversu stór hluti nafnvaxtar er tekinn út við útreikninginn. Að öðrum kosti er erfitt að meta hvað liggur að baki mældum raunvexti og hversu mikið aðhald reglan felur í raun í sér.

SA tekur undir ábendingu Seðlabankans um að æskilegra væri að staðvirða bætur með almennum mælikvarða á verðlagsþróun, svo sem vísitölu neysluverðs. Með því myndu hækkanir bóta og launa umfram almennt verðlag koma fram sem raunvöxtur útgjalda samkvæmt reglunni og hún þannig setja skýrari skorður á útgjaldavöxt.

Hægt er að skilja þennan hönnunargalla með sýnidæminu hér að neðan sem byggir á fjármálaáætlun 2027-2031. Ef laun ríkisstarfsmanna hækkuðu árlega um 5% umfram það sem gert er ráð fyrir í fjármálaáætluninni hefði það engin áhrif samkvæmt stöðugleikareglunni eins og hún er reiknuð. Áhrif á afkomu ríkissjóðs væri hinsvegar veruleg. Að öðru óbreyttu væri ríkissjóður kominn í 66 ma. kr. halla árið 2031 í stað 34 ma. kr. afgangs, eða með 101 ma. kr. lakari afkomu.

Greinin er hluti af umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til fjárlaga 2027.

Samtök atvinnulífsins