22. september 2026

Forsendubrestur kallar á umbætur en ekki aukinn kostnað

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Forsendubrestur kallar á umbætur en ekki aukinn kostnað

Stjórn Samtaka atvinnulífsins telur farsælast fyrir þróun verðlags og vaxta að gildandi kjarasamningar haldi út samningstímann. SA hafna hins vegar viðbrögðum við forsendubresti sem fela í sér frekari kostnaðarauka vegna samninganna.

Samtök atvinnulífsins hafa á undanförnum vikum átt fundi með aðilum gildandi kjarasamninga og stjórnvöldum eftir að í ljós kom að forsendur samninganna um verðlagsþróun væru brostnar.

Meginmarkmið langtímakjarasamninganna frá 2024 var að stuðla að minni verðbólgu og lægri vöxtum, auka kaupmátt og styrkja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.

Atvinnulífið gekk með samningunum að ystu mörkum þess sem talist gat samrýmast þessum markmiðum. Síðan þá hafa launahækkanir orðið meiri en samningarnir kváðu á um, á sama tíma og verðmætasköpunin sem átti að standa undir kostnaði þeirra hefur látið á sér standa. Stjórnvöld hafa jafnframt hækkað skatta og gjöld á atvinnulífið og boðað frekari hækkanir.

„Afstaða SA er skýr. Við viljum að kjarasamningarnir haldi út samningstímann og stöndum við þær umtalsverðu launahækkanir sem fram undan eru. Viðbrögðin við forsendubrestinum geta hins vegar ekki verið meiri kostnaður sem eykur verðbólgu og heldur vöxtum háum. Jafnframt þurfum við að ráðast að rót vandans og styrkja umgjörð vinnumarkaðarins,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA.

Dekkri horfur og fækkun starfa

Afstaða stjórnar SA tekur mið af viðkvæmri stöðu efnahagslífsins og versnandi rekstrarhorfum fyrirtækja.

Ný ársfjórðungsleg könnun Gallup fyrir SA og Seðlabanka Íslands sýnir að væntingar stjórnenda stærstu fyrirtækja landsins til næstu sex mánaða hafa ekki verið lægri frá árinu 2018.

Kólnunin birtist skýrt á vinnumarkaði. Um 34% fyrirtækja gera ráð fyrir fækkun starfsfólks næsta hálfa árið en aðeins 9% búast við fjölgun. Þá gera fjögur af hverjum tíu fyrirtækjum ráð fyrir minni hagnaði í ár en í fyrra.

Launakostnaður er jafnframt langalgengasta ástæða þess að fyrirtæki telja sig þurfa að hækka verð. Rúmlega 55% stjórnenda nefna hann sem helsta verðhækkunarþátt næstu sex mánaða.

Fyrirtækin áætla að aðfangaverð hækki um 4,1% á tímabilinu en verð á eigin vörum og þjónustu um 2%.

Niðurstöðurnar sýna að svigrúm fyrirtækja til frekari kostnaðarhækkana er takmarkað. Aukinn kostnaður getur komið fram í hærra verðlagi, minni fjárfestingu, lakari afkomu eða fækkun starfa.

Fimm áherslur stjórnar SA

Við þessar aðstæður telur stjórn SA nauðsynlegt að viðbrögð við forsendubrestinum samrýmist markmiðum kjarasamninganna. Eftirfarandi áherslur stjórnar voru kynntar formönnum og fulltrúum Eflingar, Starfsgreinasambands Íslands, Samiðnar, VR, Landssambands verslunarmanna og fagfélaganna á fundum 22. september:

1. Farsælast að kjarasamningar haldi gildi sínu

SA telja farsælast fyrir þróun verðlags og vaxta að kjarasamningum verði ekki sagt upp, þrátt fyrir kostnaðarauka. Með því koma að óbreyttu til framkvæmda á næsta ári 3,5–5% launahækkanir auk mögulegra kauptaxta- og framleiðniauka, hækkana kjaratengdra liða og desember- og orlofsuppbóta.

2. Fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum

SA vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni við verðbólgu með því að fyrirtæki haldi aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt út gildistíma samninganna.

3. Ekki verði samið um frekari kostnaðarauka

SA munu ekki samþykkja viðbragð við forsendubresti sem felur í sér frekari kostnaðarauka vegna kjarasamninganna, svo sem með hækkun launa.

4. Ekki verði samið um ný vinnumarkaðstengd réttindamál

SA telja forsendubrest kjarasamninganna ekki tilefni til nýrra samninga við launþegahreyfinguna um vinnumarkaðstengd réttindamál.

5. Styrkja þarf umgjörð vinnumarkaðarins

SA telja nauðsynlegt og löngu tímabært að aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hefji formlegt samtal um umbætur á íslenskum vinnumarkaði. Það er að mati SA ein meginforsenda þess að verðbólguvæntingar hjaðni.

Rjúfum vítahringinn

Markmið kjarasamninganna er óbreytt: Minni verðbólga, lægri vextir og aukinn kaupmáttur. Viðbrögð við forsendubrestinum mega ekki auka vandann sem samningunum var ætlað að leysa.

Til lengri tíma þarf vinnumarkað þar sem laun hækka í takt við verðmætasköpun og samningsniðurstöður einstakra hópa raska ekki sameiginlegum markmiðum um stöðugleika.

„Við stöndum við samningana. Næsta verkefni er að styrkja umgjörð vinnumarkaðarins,“ segir Bjarni.

Samtök atvinnulífsins