22. janúar 2025

Fjölmennur fundur um viðurlagaákvæði vinnuverndarlaga

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Fjölmennur fundur um viðurlagaákvæði vinnuverndarlaga

Í dag fór fram fjölmennur netfundur með félagsmönnum SA þar sem farið var yfir veigamiklar breytingar sem áttu sér stað á vinnuverndarlögum um áramótin.

Jón Rúnar Pálsson, lögmaður á vinnumarkaðssviði SA, fór yfir helstu breytingar og svaraði spurningum. Meðal breytinga ber helst að nefna nýja heimild Vinnueftirlitsins til að leggja á stjórnvaldssektir fyrir brot á tilteknum ákvæðum vinnuverndarlaga. Í afmörkuðum tilvikum geta alvarleg brot á vinnuverndarlögum enn fremur varðað allt að tveggja ára fangelsisvist eða sektum.

Á fundinum var að sama skapi farið yfir hvað stjórnendur og starfsfólk geti í sameiningu gert til að tryggja öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi. Liðir í því verkefni er m.a. að greina þá áhættuþætti sem geta falist í vinnuumhverfinu og framkvæmd á skriflegu áhættumati.

Á vinnumarkaðsvef SA má nálgast upplýsingar um viðurlagaákvæði vinnuverndarlaga. Einnig er hægt að fræðast um þessar breytingar á heimasíðu Vinnueftirlitsins .

Upptaka af fundinum er aðgengileg öllum félagsmönnum á vinnumarkaðsvef SA .

Samtök atvinnulífsins