1 MIN
Ávarp formanns á Ársfundi atvinnulífsins 2026
Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, setti Ársfund atvinnulífsins í Hörpu, fimmtudaginn 1. október. Hægt er að horfa á ávarpið eða lesa hér að neðan.
Forsætisráðherra, kæru fundargestir, félagar.
Í janúar 1914 sótti svo margt fólk stofnfund Eimskipafélags Íslands að flytja þurfti fundinn úr Iðnaðarmannahúsinu í Fríkirkjuna. Félagið átti ekkert skip. Enginn gat lofað að það myndi takast að reka íslenskt skipafélag. Samt lagði fólk fram fé og ákvað að hefjast handa. Á næstu árum urðu nær fimmtán þúsund manns hluthafar.
Eimskipafélagið var kallað „óskabarn þjóðarinnar“. Óvenjulega að orði komist en fólk sá að meira væri í húfi við stofnun Eimskipafélagsins en rekstur nokkurra skipa. Þetta snerist um að geta ráðið siglingum til og frá landinu, komið afurðum á markað og tekið stærra verkefni í eigin hendur.
Sagan er ekki merkileg vegna þess að fólkið á stofnfundinum vissi hvernig sagan þróaðist. Hún er merkileg vegna þess að það vissi það ekki. Fólkið sá þörfina, lagði eitthvað undir og lét á hugmyndina reyna.
Í dag þekkjum við árangurinn en sjáum hvorki né upplifum áhættuna sem var tekin. Það gerist oft þegar okkur tekst að bæta lífskjörin. Við venjumst framförunum. Okkur finnst sjálfsagt að skip sigli, vörur berist, störf séu til staðar og hægt sé að sækja sér menntun sem fyrri kynslóðir áttu ekki kost á.
En framfarir koma ekki af sjálfu sér. Áður en þær verða hversdagslegar þarf einhver að þora, einhver að hefjast handa.
Kæru fundargestir.
Við þurfum ekki að stofna skipafélag í dag. Við stöndum frammi fyrir öðrum verkefnum. Það sem ræður úrslitum hefur þó ekki breyst: Sjáum við tækifærin? Treystum við fólki til að láta á þau reyna? Höfum við sjálf hugrekki til að taka ákvarðanir?
Ég hef áhyggjur af því að við séum stundum orðin fljótari að finna ástæður fyrir því að bíða en leiðir til að byrja. Við ræðum mögulega galla nýrrar hugmyndar af mikilli nákvæmni. Kostnaðurinn við að gera ekkert fær sjaldnast athygli. Tækifæri bíður ekki þolinmótt eftir því að við höfum lokið síðasta fundinum.
Hugrekki er ekki að láta sem áhætta sé ekki til staðar. Hugrekki er að þekkja hana, taka ábyrgð á henni og halda áfram þegar verkefnið er þess virði. Þannig verða fyrirtæki til. Þannig batnar þjónusta. Þannig skapast störf sem enginn gat séð fyrir.
Reglur þurfa að verja fólk, náttúru og standa vörð um samkeppni. Þær eiga að vera skýrar og þeim á að fylgja. En ef við tökum á hverri nýrri hugmynd með því að bæta við enn einu ferlinu án þess að spyrja hvort það sé nauðsynlegt, þá verjum við að lokum ekki framtíðina. Við lokum á hana.
Gervigreind er dæmi um þetta. Hún mun ekki leysa allan okkar vanda og við eigum að taka áhættuna sem henni fylgir alvarlega. Við megum þó ekki verða svo hrædd við hana að við látum aðra um að læra á hana og nýta hana.
Okkur hefur oft vantað fleiri höfuð til að hugsa og fleiri hendur til að framkvæma. Gervigreind fjölgar ekki fólkinu í landinu. Hún getur hins vegar aukið getu hvers og eins: Hjálpað litlu fyrirtæki að sækja á nýjan markað, fagfólki að vinna úr flóknum upplýsingum og starfsfólki að verja meiri tíma í það sem krefst mannlegrar dómgreindar. Fyrir fámenna vel menntaða þjóð getur slíkt skipt miklu.
Þess vegna eigum við að prófa, læra og bæta. Við þurfum reglur um öryggi og ábyrgð. Við þurfum ekki að gera tilraunir svo erfiðar að aðeins stærstu aðilarnir hafi bolmagn til þeirra. Sá sem vill verja fólk gegn skaða á líka að vilja að við lærum að nota ný verkfæri til góðs.
Hér ber atvinnulífið sjálft ábyrgð. Það dugir ekki að kvarta yfir hindrunum ef við erum svo sjálf of treg til að breyta eigin vinnubrögðum. Stjórnendur þurfa að spyrja í hverju þeir fjárfesta núna sem mun skipta máli eftir fimm eða tíu ár. Hvaða færni þarf fólkið okkar? Hvaða verkefni er hægt að vinna betur? Og þorum við að gefa starfsfólki svigrúm til að prófa, líka þegar ekki tekst allt í fyrstu?
Það er freistandi að kalla biðina varfærni. En ákvörðunin um að bíða er líka ákvörðun. Hún getur kostað okkur nýja starfsemi, betri þjónustu og möguleika fólks til að vaxa með verkefnunum.
Góðir fundargestir.
Í sögu íslenskrar menntunar eru góð dæmi um að atvinnulífið hafi ekki aðeins bent á þörfina heldur brugðist við henni. Kaupmenn og verslunarmenn stofnuðu Verzlunarskólann. Samvinnuhreyfingin stofnaði Samvinnuskólann sem Háskólinn á Bifröst á rætur sínar að rekja til. Iðnaðarmenn byggðu upp Iðnskólann í Reykjavík sem síðar varð hluti af Tækniskólanum. Atvinnulífið stóð að stofnun nýs háskóla, Háskólans í Reykjavík.
Framhaldsfræðsla og atvinnulífið tengjast einnig órjúfanlegum böndum, þar sem markmiðið er að mæta þörfum bæði fyrirtækja og einstaklinga á vinnumarkaði og þá eru starfsmenntasjóðir einnig ávextir kjarasamninga.
Frumkvæði atvinnulífsins er ekki neðanmálsgrein í menntasögu þjóðarinnar. Þessi saga sýnir hvað gerist þegar fólk sér að þekkingu vantar og tekur sig saman um að byggja hana upp. Ávinningurinn náði síðan langt út fyrir atvinnugreinarnar sem kölluðu fyrst eftir skólunum. Nemendur fengu ný tækifæri, fjölskyldur nýja möguleika og þjóðin kunnáttu sem hún býr enn að.
Frumkvæði atvinnulífsins í íslenskri menntun á skilið virðingu. Það var ekki afskiptasemi þegar fólk úr atvinnulífinu stofnaði skóla. Það sá þörf og tók ábyrgð. Nú höfum við áhyggjur af grunnfærni barna og stöðu iðn- og starfsnáms. Þá eigum við ekki að þegja. Atvinnulífinu ber skylda til að hafa skoðun á framtíðinni.
Kæru fundargestir.
Stundum er talað um atvinnulífið eins og það standi utan samfélagsins. Eins og fyrirtækin séu helst hraðbanki sem ríkið getur sótt í þegar fjármagn vantar. Það má ekki gleyma því að fyrirtækin eru vinnustaðir fólksins í landinu. Á fyrirtækjunum byggja fjölskyldur lifibrauð sitt. Framtíð byggðarlaganna byggir á öflugu atvinnulífi. Þegar fyrirtæki lokar sjáum við hve víða áhrifin ná. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.
Það er ekki hægt að kalla eftir fleiri góðum störfum og tala um þá sem skapa þau eins og óboðna gesti. Atvinnulífið er hluti af samfélaginu.
Það er hættuleg þróun þegar stjórnmálin ala á óvild milli hópa í samfélaginu og gera þá að andstæðingum sem þurfa að vinna saman, verða að vinna saman. Tortryggni skapar engin störf. Tortryggni byggir ekkert upp. Ríkisstjórnin getur ekki kallað eftir meiri fjárfestingu og betri lífskjörum og á sama tíma grafið undan trausti til þeirra sem eiga að skapa hvort tveggja. Hún þarf að virða framlag atvinnulífsins og standa með því í verki. Boðuð hækkun bankaskatts og auknar álögur á ferðaþjónustu ganga í öfuga átt. Hærri bankaskattur getur gert fjármögnun heimila og fyrirtækja dýrari. Auknir skattar og gjöld á ferðaþjónustu þrengja að samkeppnishæfni greinar sem skapar störf um allt land. Það er mótsögn að kalla eftir meiri fjárfestingu og leggja um leið þyngri byrðar á uppbygginguna. Ríkisstjórnin þarf að skapa svigrúm til vaxtar.
Við í atvinnulífinu berum líka ábyrgð og erum tilbúin að axla hana. Hagsmunir Íslands krefjast þess að við séum samherjar. Við getum deilt um leiðirnar en samkeppnishæfni landsins og lífskjör fólksins verða að vera sameiginlegt verkefni okkar.
Kæru vinir.
Enginn getur ákveðið fyrirfram hvaða hugmynd verður næsta óskabarn þjóðarinnar. Atvinnulíf sprettur upp af hugmyndum, af nauðsyn og af nýjum aðferðum til að mæta þörfum fólks. Stundum kemur lausnin frá rótgrónu fyrirtæki. Stundum frá manneskju sem hefur enn ekki stofnað fyrirtækið sitt. Við þurfum að gefa hvoru tveggja svigrúm.
Við getum byggt innviði, menntað fólk og sett skýrar leikreglur. Síðan verðum við að treysta einstaklingum og fyrirtækjum fyrir frelsinu til að sjá tækifærin og láta á þau reyna. Frumkvæði verður ekki til með tilskipun. Og þjóð sem reynir að verja sig gegn allri óvissu mun á endanum líka verja sig gegn framförum.
Sem formaður Samtaka atvinnulífsins vil ég standa vörð um þetta athafnafrelsi. Ég vil líka að við sýnum það hugrekki sem við biðjum aðra um: Fjárfestum í fólki, nýtum nýja tækni og breytum því sem ekki virkar.
Hér á eftir fáum við ólík sjónarmið um stöðu landsins og framtíð þess. Ég vona að við göngum til umræðunnar á þessum fundi með kjark til að hlusta og vilja til að láta verkin tala.
Hugsum til fólksins sem kom saman í janúar 1914 til að stofna íslenskt skipafélag. Það átti engin skip og hafði enga vissu fyrir því að verkefnið tækist.
Það vissi að þjóð sem vildi ráða framtíð sinni þyrfti að ráða eigin siglingum.
Það hófst handa.
Verið hjartanlega velkomin á Ársfund atvinnulífsins.