21. ágúst 2026

Átján fyrirtæki fengu viðurkenningu fyrir stjórnarhætti

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Átján fyrirtæki fengu viðurkenningu fyrir stjórnarhætti

Átján íslensk fyrirtæki hlutu í gær nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum fyrir árin 2025-2026. Voru viðurkenningarnar afhentar við hátíðlega athöfn á Nauthóli. Það eru Stjórnvísi, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Nasdaq Íslands standa að viðurkenningunum.

Fyrirtækin sem hlutu viðurkenningu í ár eru Alvotech, Arion banki, Bera, Drangar, Eik fasteignafélag, Heimar, Icelandair Group, Íslandssjóðir, Kvika banki, Orkan IS, Reiknistofa bankanna, Reitir fasteignafélag, Sjóvá, Skagi, Stefnir, Styrkás, VÍS og Vörður tryggingar. Þrjú þeirra, Bera, Drangar og Styrkás, hljóta nú nafnbótina í fyrsta sinn.

Markmið verkefnisins er að efla traust í viðskiptalífinu og styrkja innviði fyrirtækja með því að hvetja til skýrra vald- og ábyrgðarskipta meðal stjórna og stjórnenda. Fylgni við góða stjórnarhætti stuðlar að faglegri ákvarðanatöku, ábyrgari rekstri og bættri samskiptamenningu innan fyrirtækja. Þannig verður stjórnarstarf bæði skilvirkara og traustara í augum almennings.

Jón Hreiðar Sigurðsson, verkefnisstjóri Fyrirmyndarfyrirtækja, flutti inngangsorð um verkefnið og Marta Guðrún Blöndal, lögmaður og nefndarmaður í nefnd um stjórnarhætti fyrirtækja flutti erindi.

Viðurkenningarnar voru afhentar af Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands, stýrði fundinum.

Samtök atvinnulífsins