Menntamál - 

11. febrúar 2025

Arion banki er Menntafyrirtæki ársins 2025

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Arion banki er Menntafyrirtæki ársins 2025

Menntaverðlaun atvinnulífsins voru veitt í dag fyrirtækjum sem skara fram úr í fræðslu- og menntamálum. Arion banki er Menntafyrirtæki ársins og Alda hlýtur Menntasprotann 2025. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins afhentu verðlaunin á Menntadegi atvinnulífsins sem fram fór á Hilton Nordica í dag.

Arion banki er Menntafyrirtæki ársins 2025

Í umfjöllun dómnefndar kemur fram að Arion banki reki öflugt og metnaðarfullt fræðslukerfi sem nýtir fjölbreyttar og nýjar leiðir til að virkja kraftinn í stórum og fjölbreyttum hópi starfsfólks. Starfsfólk þróar námsefni sjálft á frumlegan hátt, fræðsluvísitala er innbyggð í fræðslustarfið og vel er haldið utan um starfsþróun innan fyrirtækisins, svo fátt eitt sé nefnt. Með verkefni eins og „Konur fjárfestum!“ tengir bankinn að auki fræðslustarfið við samfélagslega ábyrgð.

Ljóst er að stefnumiðuð og markviss vinna í fræðslumálum hjá Arion banka skilar sér í framsæknu og faglegu fræðslustarfi og þar af leiðandi ánægðu starfsfólki.

Menntun á sér nærri órjúfanlegan feril frá fyrstu árum lífsins til starfsreynslu á vinnumarkaði og símenntunar út æviskeiðið. Við hjá SA erum stolt að sjá félagsmenn okkar sinna vandaðri fræðslu á vinnustað “, segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri SA af þessu tilefni

Verðlaunin voru veitt af forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur á Menntadegi atvinnulífsins í Hörpu í dag.

Dagurinn er samstarfsverkefni Samtaka atvinnulífsins og aðildarsamtaka þvert á atvinnugreinar.

Þetta er í tólfta sinn sem dagurinn er haldinn. Yfirskrift menntadagsins í ár var Störf á tímamótum.


Tengt frétt

Alda hlýtur Menntasprota atvinnulífsins 2025
Lesa meira

Samtök atvinnulífsins