1 MIN
Þyngri byrðar á banka og byggingariðnað
Langhæstu skattar á fjármálafyrirtæki í Vestur-Evrópu hækka enn
Til stendur að hækka skatt á skuldir banka umfram 50 milljarða úr 0,145% í 0,254% eða um ríflega 75%. Ráðgert er að hækkunin skili 6 ma.kr. til viðbótar við þá sértæku skatta sem nú þegar eru lagðir á fjármálafyrirtæki og eru þeir langhæstu í Vestur-Evrópu. Skatturinn er ófrádráttabær tekjuskatti og er því raunar íþyngjandi kostnaðarliður inn í rekstrarreikning bankanna. Meginhlutverk banka er að miðla sparnaði til fjárfestinga heimila og fyrirtækja. Auknir bankaskattar og aukinn kostnaður kann því að draga úr fjárfestingu vegna neikvæðra áhrifa á útláns- og innlánsvexti líkt og margar rannsóknir hafa leitt í ljós.[1][2]
Sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki, fjársýsluskattur og sérstakur fjársýsluskattur skiluðu ríkissjóði samanlagt 18 ma.kr. á síðasta ári, til viðbótar við almennan tekjuskatt. Álagning allra þriggja skattanna samtímis er einsdæmi á Norðurlöndunum. Þar að auki búa íslensk fjármálafyrirtæki við hærri eiginfjárkröfur en víða í nágrannaríkjum ásamt vaxtalausri bindiskyldu. Frekari sértæk skattheimta eykur þennan mun enn frekar og getur skilað sér í lakari fjármagnskjörum fyrirtækja og heimila og veikari samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Ekki er að sjá að afkoma íslenskra banka sé betri en gengur og gerist í Evrópu, þvert á móti. Raunarðsemi eigin fjár íslenskra banka er lakari en í Evrópu og talsvert lakari en á hinum Norðurlöndunum. Sértæk skattheimta á fjármálafyrirtæki bitnar jafnframt á ríkinu sjálfu sem eiganda um 99,8% hlutar í Landsbankanum. Skyndilegar skattabreytingar í kjölfar eignasölu geta jafnframt dregið úr trúverðugleika ríkisins sem seljanda eigna og þannig haft áhrif á kjör við síðari eignasölu. Samtökin ítreka að leggja ætti frekar áherslu á sölu eignarhluta bankans.
Ef framfylgja á markmiðum atvinnustefnunnar og styðja við fjárfestingu telja samtökin rétt að falla frá hugmyndum um enn aukna sértæka skattheimtu á fjármálakerfið. Þvert á móti væri nær að leggja fram skýra og fyrirsjáanlega áætlun um hvernig draga megi úr þeirri sértæku skattheimtu sem fjármálafyrirtæki búa nú þegar við og erfitt er að rökstyðja.
Byggingarkostnaður aukinn á viðkvæmum tíma
Fyrirhuguð lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts af byggingarvinnu á verkstað eykur byggingarkostnað á sérlega óheppilegum tíma. Virðisaukaskattur leysti söluskatt af hólmi 1. janúar 1990. Vinna á byggingarstað hafði verið utan söluskattskerfisins og var endurgreiðslunni komið á til að koma í veg fyrir þá hækkun byggingarkostnaðar sem ella hefði orðið við skattlagningu vinnunnar.
Frá því að virðisaukaskattur var tekinn upp hafa stjórnvöld beitt endurgreiðsluhlutfallinu í takt við hagsveifluna og aðstæður í byggingariðnaði. Hlutfallið var hækkað í 100% bæði eftir fjármálahrun og í heimsfaraldrinum til að viðhalda umsvifum og störfum, og lækkað í uppsveiflu þegar draga þurfti úr þenslu. Nú stendur til að lækka hlutfallið á sama tíma og íbúðauppbygging dregst saman, vextir eru háir og atvinnuleysi vaxandi. Hlutfallið yrði þá það lægsta frá upphafi, þegar aðstæður kalla frekar á hið gagnstæða.
Lækkun endurgreiðslunnar leggst beint á kostnað við nýbyggingar og ratar að lokum út í íbúðaverð og leiguverð. Samkvæmt mati Samtaka iðnaðarins jafngildir breytingin 1,1-1,3 m.kr. skattahækkun á byggingarkostnað 100 fermetra íbúðar. Á sama tíma og stjórnvöld leggja áherslu á bætt aðgengi að húsnæði er mótsagnakennt að gera uppbyggingu dýrari. Hærri byggingarkostnaður getur auk þess orðið til þess að verkefni sem standa tæpt verði slegin af eða þeim frestað, sem getur aukið framboðsvanda til lengri tíma og viðhaldið þrýstingi á húsnæðislið vísitölu neysluverðs. Áhrifin geta þannig unnið gegn markmiðum stjórnvalda um hjöðnun verðbólgu þegar fram í sækir.
Samkvæmt HMS hefur hægt verulega á uppbyggingu íbúða og hafa horfur til næstu ára versnað. Nýjar framkvæmdir hafa aldrei verið færri milli íbúðatalninga HMS og ekki hafa verið færri íbúðir í uppbyggingu á fyrri framvindustigum.[3] Reynslan sýnir hversu langvarandi áhrif samdráttur í uppbyggingu getur haft; eftir fjármálaáfallið dróst framboð nýrra íbúða verulega saman og tók mörg ár að ná sér á strik. Að hækka byggingarkostnað við þessar aðstæður eykur hættuna á nýjum framboðsskorti þegar eftirspurn tekur aftur við sér.
Breytingin eykur jafnframt hvata til svartrar atvinnustarfsemi, en endurgreiðslunni var frá upphafi meðal annars ætlað að draga úr hvata til vinnu utan skattkerfisins. Það á ekki síst við um viðhald og endurbætur á vegum einstaklinga. Lægri endurgreiðsla minnkar ávinninginn af því að gefa upp vinnuna og getur því skilað ríkissjóði minna en áætlað er, auk þess að skekkja samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem standa skil á sínu.
Áætlað er að breytingin skili ríkissjóði um 3,6 ma.kr. á ári. Samtökin telja að þann ávinning þurfi að meta á móti minni umsvifum í byggingariðnaði, töpuðum skatttekjum af minni starfsemi og auknum húsnæðiskostnaði heimila. Samtökin telja því rétt að falla frá lækkun endurgreiðsluhlutfallsins og tryggja fremur stöðug skilyrði til húsnæðisuppbyggingar.
Greinin er hluti af umsögn Samtaka atvinnulífsins um frumvarp til fjárlaga 2027.