Samkeppnishæfni - 

23. nóvember 2017

Opinn fræðslufundur Litla Íslands

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Opinn fræðslufundur Litla Íslands

Litla Íslands efnir til fræðslufundar í Húsi atvinnulífsins föstudaginn 24. nóvember kl. 9-10. Þar mun Inga Björg Hjaltadóttir, héraðsdómslögmaður hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur, ráðgjafi og eigandi hjá Attentus, fjalla um helstu samninga í fyrirtækjarekstri og mikilvægi vandaðrar samningagerðar.

Litla Íslands efnir til fræðslufundar í Húsi atvinnulífsins föstudaginn 24. nóvember kl. 9-10. Þar mun Inga Björg Hjaltadóttir, héraðsdómslögmaður hjá Lögfræðistofu Reykjavíkur, ráðgjafi og eigandi hjá Attentus, fjalla um helstu samninga í fyrirtækjarekstri og mikilvægi vandaðrar samningagerðar.

Rætt verður m.a. um ráðningarsamninga, hluthafasamkomulag, leigusamninga, samninga við birgja og viðskiptavini. Ef samningamálin eru í lagi geta stjórnendur einbeitt sér að því að láta reksturinn blómstra og því til mikils að vinna að vanda alla samningagerð.

Stóra lausnin er smá!

Fundurinn er hluti af fræðslufundaröð Litla Íslands þar sem sjónum er beint að hagsmunum lítilla og meðalstórra fyrirtækja og því sem einkennir vel rekin fyrirtæki.

Fundirnir hafa verið vel sóttir og fjölmargir hafa auk þess horft á beina útsendingu frá fundunum í Sjónvarpi atvinnulífsins eða upptökur sem eru á vef Litla Íslands.

Litla Ísland um markaðsmál – smelltu til að horfa

Litla Ísland um Lean - straumlínustjórnun – smelltu til að horfa


Fundurinn á morgun er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir í Borgartúni 35, en beina útsendingu frá fundinum má nálgast á nýjum vef Litla Íslands – www.litlaisland.is. Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.


Framundan í desember eru svo fundir um markmiðasetningu og bókhald og á nýju ári verður efnt til Smáþings og hringferðar um landið undir merkjum Litla Íslands.

1. desember: Markmiðasetning

8. desember: Bókhald

Bakhjarlar Litla Íslands eru SA, SI, SAF, SVÞ og SFF

SKRÁNING

Umsóknarferli er lokið.

 

 

 

 

 

Samtök atvinnulífsins