Desemberuppbót 2023

Desemberuppbót fyrir árið 2023 er kr. 103.000 fyrir fullt starf í öllum aðalkjarasamningum SA og greiðist eigi síðar en 15. desember.

Réttur til fullrar desemberuppbótar miðast við að starfsmaður hafi unnið 45 vikur eða meira á almanaksárinu, 1. janúar - 31. desember, fyrir utan orlof.

Hverjir eiga rétt á desemberuppbót?

Starfsmenn sem eru í starfi fyrstu vikuna í desember
Starfsmenn sem eru í starfi fyrstu vikuna í desember ár hvert eiga ávallt rétt á uppbót, hlutfallslegri miðað við starfstíma og/eða starfshlutfall á almanaksárinu, 1. janúar - 31. desember.

Þeir sem hafa verið í fullu starfi allt árið eiga rétt á fullri uppbót, en þeir sem hafa unnið hlutastarf eiga rétt í samræmi við starfshlutfall.

Fullt ársstarf telst vera 45 unnar vikur eða meira á almanaksárinu, fyrir utan orlof.

Uppgjör desemberuppbótar við starfslok
Hætti starfsmaður störfum fyrir fyrstu viku desember, þarf hann að hafa unnið a.m.k. 12 vikna samfellt starf á síðustu 12 mánuðum til að eiga rétt á desemberuppbót. Þá á hann rétt á að fá uppbótina greidda við starfslok, en þá hlutfallslega miðað við starfstíma og starfshlutfall.

Útreikningur desemberuppbótar

Full uppbót, kr. 103.000, miðast við 45 unnar vikur á almanaksárinu, 1. janúar - 31. desember. Orlofsvikur teljast því ekki með.

Dæmi 1:
Verslunarmaður vinnur frá 1. janúar til 1. október 2023 eða samtals 39 vikur. Þar af tók hann sumarleyfi í 4 vikur. Hann fær því 77,8% af fullri uppbót (35 vikur / 45 vikur) eða kr. 103.000 x 0,778 = Kr. 80.134.

Dæmi 2:
Verkamaður hefur störf 1. október og fyrirséð er að hann mun starfa fram til áramóta. Frá 1. okt. til 31. des. eru 13 vikur. Hlutfall desemberuppbótar er 28,9% (13 vikur / 45 vikur). Uppbót hans er kr. 103.000 x 0,289 = kr. 29.767.

Starfsfólk í hlutastarfi
Starfsfólk í hlutastarfi fær greitt hlutfallslega. Almennt er miðað við fast hlutfall dagvinnu eða vaktavinnu. Skv. kjarasamningi verslunar- og skrifstofufólks miðast starfshlutfall við fasta reglubundna vinnu, þó að hámarki 38,75 klst. hjá afgreiðslufólki og 36,75 klst. hjá skrifstofufólki á viku. Skiptir þá ekki máli hvort um fasta dag-, kvöld- eða helgarvinnu sé að ræða. Yfirvinna sem ekki er föst gefur því ekki hækkun á uppbótinni.

Séu vinnuskil mismunandi milli mánaða er hægt að miða við að full uppbót miðist almennt við 1.800 stundir (40 klst. x 45 vikur) yfir árið, þó 1.744 stundir hjá afgreiðslufólki og 1.654 stundir hjá skrifstofufólki. Tilfallandi yfirvinna telst þó ekki með í þessu sambandi.

Hjá iðnaðarmönnum þarf að hafa í huga að "virkur vinnutími" var tekinn upp 1. apríl 2020 og miðast fullt starf við 36 klst. og 15 mín. virkar vinnustundir á viku að tekni tilliti til vinnutímastyttingar 1. janúar 2022.

Hjá Iðnaðarmönnum með virkan vinnutíma þar sem vinnuskil eru mismunandi milli mánaða miðast full uppbót við 1.631 stundir frá og með 2022 (36,25 klst. X 45 vikur).

Fjarvistir vegna veikinda og fæðingarorlofs

Veikindafjarvistir
Hafi starfsmaður verið fjarverandi vegna veikinda skal við útreikning uppbótar telja þær vikur með sem hann fékk greiddar. Desemberuppbót skerðist því aðeins hafi starfsmaður fullnýtt veikindarétt sinn og fallið af launaskrá.

Fjarvistir vegna fæðingarorlofs
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desemberuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggisástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma.

Hvenær skal greiða desemberuppbót?

Greiða skal desemberuppbót í síðasta lagi 15. desember ár hvert. Starfsmaður sem hættir störfum fyrr á árinu skal við starfslok fá uppbótina greidda hlutfallslega miða við starfstíma og starfshlutfall, hafi hann unnið a.m.k. 12 vikna samfellt starf á síðustu 12 mánuðum.

Gjöld eða greiðslur sem ber að draga af desemberuppbót

Fara skal með desemberuppbót eins og hver önnur laun. Orlofslaun eru þó innifalin í desemberuppbót og greiðast því ekki sérstaklega.