22. desember 2021

Frumvarpið verði dregið til baka

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Frumvarpið verði dregið til baka

Breytingum á fjarskiptalögum og lögum um erlendra fjárfestingu sé fundinn annar farvegur í heildstæðri endurskoðun viðeigandi lagagreina.

Samtök atvinnulifsins, Samtök iðnaðarins og Viðskiptaráð Íslands gera alvarlegar athugasemdir við frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjarskipti, á lögum um Fjarskiptastofu og lögum um fjárfestingu erlendra aðila i atvinnurekstri í umsögn sinni við mál nr. 169 a yfirstandandi þingi.

Samráðsleysi við gerð frumvarpsins og sá hraði sem lagt er upp með við að koma umræddum breytingum í gegn er gagnrýniverður. Samtökin leggja til að fallið verði frá framvarpinu og að efnisatriði frumvarpsins verði tekin upp a öðrum vettvangi, annars vegar við heildarendurskoðun á lagaumgjörð erlendrar fjárfestingar og rýni a fjárfestingu erlendra aðila í samfélagslega mikilvægum innviðum, sem stendur til að leggja fram, og hins vegar við heildarendurskoðun á fjarskiptalögum. Nauðsynlegt er að hvers kyns lagabreytingar á sviði erlendrar fjárfestingar séu vel ígrundaðar og byggi á samráði við íslenskt atvinnulíf enda skiptir erlend fjárfesting íslenskt efnahagslíf miklu máli til framtíðar.

Í niðurlagi umsagnarinnar segir að í ljósi þeirra atriða sem í henni eru dregin fram hvetji samtökin til þess að frumvarpið verði dregið til baka í núverandi mynd og þeim breytingum sem stefnt er að sé fundinn annar farvegur í heildstæðri endurskoðun viðeigandi lagagreina.

Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.

Samtök atvinnulífsins