Samkeppnishæfni - 

09. september 2020

Tvö vandamál

Samtök atvinnulífsins

1 MIN

Tvö vandamál

Við stöndum frammi fyrir tveimur meiriháttar vandamálum á sama tíma, sem ógna lífsgæðum okkar og þar með heilsu: loftslagshlýnun og kórónaveirukreppunni. Kóróna­veirukreppan þarfnast ekki bara bráðaaðgerða eins og þeirra sem stjórnvöld hafa þegar gripið til, heldur einnig tafarlausra aðgerða sem snúa að efnahagsbata til lengri tíma. Þótt hlýnandi loftslag sé ekki nýtilkomið, og verði ekki leyst með töfralausnum, þá þarfnast það tafarlausra aðgerða. Tíminn vinnur ekki með okkur.

Í ljósi stöðunnar megum við ekki grípa til aðgerða vegna annars vandans án þess að meta hvaða áhrif þær hafa á hinn. Það vill svo vel til að lykillausnir að báðum vandamálunum eru þær sömu: nýsköpun og fjárfesting. Ein alvarlegasta afleiðing kóróna­veirukreppunnar er atvinnuleysi, sem var 8,8% í síðustu mælingu. Nýsköpun og fjárfesting er lykillinn að sköpun starfa.

Það er nauðsynlegt að skapa jákvæða hvata til að markmið um kolefnishlutleysi náist. Fjárfesting þarf að eiga sér stað í til dæmis nýsköpun til að þróa nýja tækni. Orkuskipti þurfa að eiga sér stað í samgöngum með fjárfestingu í innviðum og samgöngutækjum. Fyrirtæki þurfa að fjárfesta í nýjum tækjum, bílum og skipum sem nota minni orku og fjárfesta þarf í flutningskerfi raforku svo að atvinnulíf um land allt hafi greiðan aðgang að grænni orku. Græn fjármögnun er lykilþáttur í að tryggja að allt þetta gerist.

Þótt lausnirnar séu augljósar er ekki augljóst að okkur lánist að nýta þær. Til þess að svo megi verða þarf að búa atvinnulífinu gott umhverfi með jákvæðum hvötum, lágum sköttum og lagaumhverfi sem er ekki óþarflega íþyngjandi.

Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins. Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.

Samtök atvinnulífsins